Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1916, Side 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1916, Side 1
Um fjórðungamót sunnlendingafjórðung3 og vestfirðingafjórðungs. Eptir Matthías Þórðarson. Það er orðið gamalt vafamál, hver hafi verið takmörk þessara tveggja landsfjórðunga lögurn samkvæmt á þjóðveldistímabilinu. Viðvikjandi skoðunum manna á því máli nægir að vísa á rit Konr. Maures, Island, bls. 155—56, og Kr. Kalunds, Isl. Beskr., einkum I b., bls. 331—37; síðan ritaði Sigurður Vigfússon í Árb. 1886, bls. 35—41, um sama efni m. a., og loks Bogi Th. Melsteðiísl. s., II. b., bls. 64—67. Mun mega segja, að niðurstaða málsins sé sú, aðallega samkvæmt rannsóknum Kálunds, að Hvalfjörður og Botnsá hafi skilið fjórðungana á sama hátt og nú Kjósarsýslu og Borgfjarðar* sýslu. Er þessi skoðun einkum studd við máldaga einn um ostgjald til Viðeyjar-klausturs, sem »var giorr a alþinge at raðe Magnus biskop(s), en Snorre Sturlu son hafðe vppe j logrettv oc nefnde vatta« að. Máldaginn er prentaður í ísl. fornbrs. I, bls. (492—)496; ætlar útgefandinn, Jón Sigurðsson forseti, að hann sé frá því ári, er ann* álar greina, að klaustrið hafi verið stofnað: 1226. Víst er það, að hann er frá þjóðveldistímabilinu. I þessum máldaga stendur, »at a meðal Reykianess oc Bozar skal giallda af hverivm bæ, þeim er ostr er giorr, slikan hleif sem þar er giorr, til staðarens j Viðey hvert havst«. Því að eins gat verið um skýr staðarleg takmörk á þingsókn að ræða, að þar væru fjórðungamót. Nú er það vitanlegt, að Kjalar- nessþing og Þverárþing voru hvort í sínum fjórðungi; þykjast menn því hafa fundið fjórðungamótin milli sunnlendingafjórðungs og vest- firðingafjórðungs, er menn hafa fundið takmörk þinganna, þar sem þau hafa mæzt. Nú álíta menn, að í máldaganum um ostgjaldið 1226 hafi verið miðað við Botnsá1), af því að Kjalarnessþing hafl *) Boza = Botsá, frb. Bossá svo sem nú. N féll úr framburði og opt í rit* hættí er svona stóð á. I stað ts var þá og opt ritað z.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.