Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1916, Qupperneq 11
11
ura Miðfjörð og Víðidal * *), en þar fyrir gat hann ekki stefnt mönnum
þaðan til varnarþings suður í Borgarfirði (Þverárþings). — Sagt er
það og í Sturl. s.2), að Markús bóndi Skeggjason, er bjó á Eyri í
Kjós, hafi verið þingmaður Sæmundar Jónssonar í Odda; jen þeir
voru líka með vissu báðir sunnlendingafjórðungs-menn. En svo segir
líka skömmu á eptir3), að »Sæmunðr sendi Snorra Sturlu son til
Borgar-fiarðar at qveðia manna vpp, er Ton faðir hans hafði att,
bædi marga oc goda bændr. Fecc hann gott mann-val«. Hér virð-
ist vera um þingfasta menn að ræða, í þingi með Oddaverjum og
menn í öðrum fjórðungi, hefðu fjórðungamótin þá verið við Botnsá.
En vitanlega gat slíkt verið »lofað að lögbergi« og alt löglegt, þótt
Oddaverjar ættu ekki goðorð í Borgarfirði. A líkan hátt má, svo
sem fyr var bent á, segja um það, að Þórðr Sturluson átti þing-
menii í Borgarfirði austan Hvítár; t. d. er sagt í Sturl. s.4), að Há-
mundr bóndi Gilsson, er bjó á Lundi í Lundarreykjadal hafi verið
þingmaður Þórðar Sturlusonar, er þá hafði tekið við Þórsnesingagoð-
orði hálfu af Ara sterka Þorgilssyni5); hafa þeir ekki verið sam-
fjórðungsmenn, eða Hámundr í sama fjórðungi (landfræðislega skoðað)
og Þórsnessþing, ef Hvítá þá hefir skilið fjórðunga, og, eins og áður
var sagt, mun Þórðr ekki hafa átt hluta í nokkuru goðorði í Þver-
árþingi. — Sama er að segja um það, að þeir feðgar á Oddsstöðum,
Þórðr rauðr og Finnr, voru þingmenn Kolbeins Tumasonar4), ér ekki
virðist hafa átt goðorð í Þverárþingi. Virðist svo sem allmikil brögð
hafi verið að því um þær mundir að hafa mannaforráð í öðrum
þingum og öðrum landsfjórðungum, og að höfðingjar hafi aflað sér
þingmanna utan fjórðungs, jafnvel þótt þeir ættu þar ekki goðorð né
goðorðahluta og væri ekki lögum samkvæmt, nema lofað væri.
Af þessu, sem nú hefir verið tekið fram, má nokkuð ráða, hvað
á því verði bygt í þessu sambandi, að ostagjaldið til Viðeyjar var
takmarkað við Botnsá 1226.
Þess var getið hér áður, að svo væri að orði komist í Lög-
mannsannál, að ætla mætti, að vestíirðingafjórðungur hafi verið
talinn ná að Botnsá árið 1405. Annaðhvort hefir lítið þótt takandi
mark á þessu í þessu sambandi hingað til, eða menn hafa ekki veitt
i) Stnrl. s. I., bls. 275 og 320. Sbr. ritgj. prof. B. M. Ólsens i Tim. II, 1—31.
*) Sturl. s. I., bls. 239.
*) Sturl. s. I., bls. 242, það var um vorið 1200.
‘) Sturl. s. I., bls. 235—30.
*) Sturl. s. I., bls. 234, sbr. 239, þar sem og er sagt að Þórðr tæki siðar
víð binum belmingnum af Þorgilsi presti Snorrasyni.
2*