Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1916, Side 37
37
6812. 25/3 Slcúfhóllmr úr silfri, ógyltur, en annars mjög líkur
nr. 6811; stærðin sama.
6813. 25/3 Skúfhólkur úr silfri, uppmjór og sívalur, 1. 5,2,
þverm. 2,2 cm. neðst, en 1,3 efst. Tvöfaldur; ytra borðið kornsett
víravirki, 3 hríslur langsetis; innan í er slétt fóður.
6814. 25/3 Skúfhólkur úr silfri, 1. 5,2 cm. all-vel sivalur, mjóstur
um miðju, þverm. 1,4 cm., en við enda 2. Drifinn aliur, með smá-
bólum kringlóttum og litlum ferhyrningum.
Þessir skúl'hólkar, nr. 6802—6814, eru vestan úr Staðarsveit
og Miklholtshreppi. Þeir munu flestir vera frá því um og eptir
miðja öldina síðustu. Flestir eru þeir skemdir, voru ætlaðir í bræðslu.
6815. 25/3 Beltispör úr silfri; skjöldurinn 4,8 cm. að þverm ;
stokkarnir 6,3 að 1. og 1,9 cm. að br. Þeir eru með laglega gröl'nu
blómskrauti framaná, og í miðjum skildinum hangir víravirkislauf,
hjartamyndað.
6816. 28/3 Jónsbók, »Huss Postilla« Jóns byskups Vidalin, 3.
útg. Skemd af fúa, ekki heil. Bundin í alskinn og með gröfnum
látúnsspenslum. Kápan er með miklu, þryktu verki; eru manna-
myndir í einum bekknum, sem gerður hefir verið með hjóli (»rullu«),
og upphafsstafirnir ÞÞS og ártalið 1767. Spjöldin eru 20,8X14,7
cm. að stærð og bókin 7,5—8 cm. að þykt
6817. 30/3 Prjónastokkur úr greni; útskorið lok, með upphafs-
stöfunum Þ S D og ártalinu 1820. Ferstrendur, 3,9 cm. á livorn veg
og 27,5 cm. að lengd. Ofan úr Borgarfirði.
6818 a-b. 13/4 Trétöflur tvær, útskornar á annari hlið, upphleypt
verk mjög vel gert; þær eru úr mahógni, ósamsettar, ferhyrndar, og
eru hornin rétt í annan, neðri, endann, en bogamynduð í hinn. L.
37,3 cm , br. 27,1 og 27,6 cm.; þ. um 3 cm. Á annari eru skjald-
merkis-ljónin 3 og -hjörtun (-sæblöðin) 9, en á hinni er stafur Mer-
kúrs og þriforkur Neptúns i kross, og kóróna yfir, en fyrir neðan
þá er býflugnabú (býkúpa). Umhverfis á báðum er eins konar um-
gerð skorin í skelstíl. Töflur þessar hafa verið festar upp á verzl-
unarhús sem skildir (»skilti«) og eru sennilega frá því að »almenna
verzlunarfélagið« hafði hér verzlunina 1763—87. Þær eru frá ísa-
firði; voru þar á verzlunarhúsi gömlu í neðsta kaupstaðnum, þar
sem nú er pakkhús verzlunar Ásgeirs Ásgeirssonar. Aptan á aðra
eru skornir stafirnir B B F, en á hina B B A. — 4 göt eru á hvorri
fyrir skrúfur.
6819. 15/4 Skúfhólkur úr silfri, 1. 5,6 cm., þverm. 1,8 cm.,
laufskorinn og riáandi í endana, annars beinn. Blóm grafið á, sem
breiðist umhverfis allann hólkinn. Líklega frá því um 1870.