Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1919, Síða 16
12
Af því, er að framan hefur verið aagt, og meðfylgjandi mynd-
um, mega menn sjá, að íslenska fiðlan er einstakt hljóðfæri í sinni
röð, bæði að gerð og því, hversu á hana hefur verið leikið. I
framangreindri ritgjörð ungfrú Hortense Panum er engu hljóðfæri
lýst, er likist henni verulega að þessu leyti. Jeg vil þó ekki iáta
hjá líða að benda á mynd eina, sem hún birtir (Fig. 22, bls. 143 í
Aarsberetn. 1905) og ræðir dálítið um. Hún er af úthöggvinni stein-
mynd í dómkirkjunni í Niðarósi. Þessi prentmynd er ekki svo
greinileg, að vel verði af henni sjeð gerð steinmyndarinnar, en
samt þykir mjer hún benda mjög til, að hjer sje forn fiðlari að leika
á fiðlu, svipaða íslensku fiðlunni, og syngur karl með. Lýsing H.
P. er ekki alls kostar sennileg og verðskuldar þessi syngjandi stein-
fiðlari frá 12. öld, að honum yrði meiri gaumur gefinn.
Matthías Þórðarson,