Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1919, Side 26
22
Það þótti boða besta tíð, ef miltið skarst aíveg í sundur í þrjá
jafna parta. Hver partur átti að tákna part af vetrinum; talið frá
bægri til vinstri, fyrir aftan sig. Fyrsti parturinn frá veturnóttum
til jólaföstu, annar frá jólaföstu til Þorra og sá þriðji frá Þorra og
fram úr. Eftir því sem stykkin voru stærri, því verri átti tíðin
að veiða.
Valdimar Öt&uraraon,
frá Kollsvík.
Hversu spáð var eftir hinum síðari aðalhættinum má sjá af
eftirfylgjandi skýrslu, sem skrifuð er upp eftir Jakobi Árnasyni, verði
í Þjóðminjasafninu, öldruðum manni greinagóðum og rjettorðum.
Hann segir svo frá því:
Aö spá í milta fyrir vetri.
Eitt af þvi, sem gamlir menn tóku mark á um það, hvernig
vetur yrði, var það, að þegar skorinn var stórgripur, þá var tekið
miltað, þegar er komið var innan í, og lagt á jörð (ekki á fjöl) og
skornir 3 skurðir í það, en ekki skorið í sundur, og skyldu part-
arnir vera sem jafnastir. Ef sá bólgnaði mest, sem var til hægri
handar, þá var fyrsti partur vetrar harður, en ef miðparturinn
bólgnaði mest, þá átti miðpartur vetrarins að verða harður, og ef
endinn á miltanu bólgnaði mest, þá síðasti parturinn. Fyrsti kaflinn
var talinn frá vetrarbyrjun og fram að jólum, miðkafli frá jólum
fram í miðgóu og síðasti frá miðgóu og fram úr til sumars. Þannig
var spáð og ekki öðruvísi svo jeg til vissi i Rangárvalla- og Árnes-
sýslum, og sá jeg það margoft gert; þótti sjálfsagt að taka miltað
og skera í það, og skoða svo. — Frá því skorið var í miltað leið
nokkur stund, um hálfur klukkutími, þar til er miltað var orðið
kalt og gætt var að því.
Miltað var aldrei haft til matar, heldur hirt af hundum eða
hröfnum
Jakob Arnason.
Ovíst er, hvor aðalþátturinn er eldri eða upphaflegri, en jeg
hygg, að sá, er hjer var lýst síðar, sje eldri. Menn munu hafa veitt
því eftirtekt, að hlutir úr sundurskornu milti þrútnuðu, og það mis-
jafnlega; hefur þeim þótt það dularfult og eignað það á einhvern
hátt áhrifum frá dulrænum verum. Hafa síðan sett það í samband
við árferði komandi vetrar og þannig farið að taka mark á því og