Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 04.01.1986, Blaðsíða 8
40
ÁRBÚK FORNLEIFAFÉLAGSINS
húsinu var gengið austur í B en vestur í D. Úr norðurenda C liggja
göng E sem greinast til húsanna F og G.
Hús þetta hefur verið 4,2 m á lengd og rúmir 1,6 m á breidd. í tótt-
inni var þarna sandur og nokkuð var af þakhellum, sem hölluðust upp
að veggjum er voru innfallnir.
Eftir endilöngu gólfi hússins lá renna frá norðri til suðurs. Rennan lá
síðan áfram inn göng E. Hún er misbrcið með óreglulega fláandi
börmum, en óslitin og jafndjúp. Botn hennar er 0,25 m lægri en gólfið
vestast í skálanum, en 0,35 m lægri en gólfið í D þar sem það er lægst.
Renna þessi eða lokræsi hélt áfram til suðurs og er út fyrir húsin kom
stefndi það til suðvesturs og var þá vestan við „kirkjustéttina" og náði
langt fram á hlað.
Merki voru greinileg eftir timburgólf í forstofunni. För sáust eftir
planka, sem hafa legið norður-suður. Milli þeirra var afar mjúk
gólfskán. Fjalir hafa að líkindum verið negldar þvert á plankana. Timb-
urgólf þetta hefur vcrið í líkri hæð og neðri brún gólfhellna í göngum.
D (búr)
Vestan við forstofu var tótt þar sem að líkindum hefur verið búr. Eða
eins og Gísli komst sjálfur að orði þá hcfur D vafalaust vcrið matar-
geymsla með jarðgröfnum sáum í gólfi, en einnig með eldstæði. Tóttin
var um 0,5 m mjórri en skálinn, enda var 0,5 m stallur á norðurvegg
við forstofu strax við inngöngu til bakhúsa. Suðurveggur var í beinu
framhaldi af suðurvegg skála, þó er vegglínan að innan nokkuð í boga
og því er tótt þessi mjórri vestast. Klefi er norður úr norðvesturhorni
tóttarinnar og þar í voru leifar af sá, sem nánar verður greint frá síðar.
Tóttin er um 7,6 m að lengd frá forstofu talið, 3,4 m á breidd austast,
en um 3 m vestast sé reiknað frá klcfadyrum. Veggir voru hlaðnir úr
grjóti og er hæð þeirra við þverskurð um 1,3 m að norðan en um 1,5
m að sunnan, og er þá miðað við lægsta punkt í gólfi. Suðurveggur
þessarar tóttar hefur verið allþykkur vestast, og sá þykkasti í bænum
enda er útveggjalínan að sunnan bcin. Að utan var veggurinn haganlega
hlaðinn úr stórum steinum, en slútti nokkuð fram yfir sig.
Tóttin var full af foksandi og í honum eitthvað af þakhellum og
vegghleðslusteinum. Rofmold var nokkru ofan við gólf og þar undir
lag af jökulleir og sáust þar á mótunum hellublöð. Undir þeim var
smáflögótt vatnsborið sandlag, þá þunnt leirlag og milli þess og gólfsins
var glerhörð rauðaskán. Gólfið í tóttinni var óslétt, gólfskán var þunn
en þó lagskipt og flögótt. Gólfið var hæst út við veggina og í miðju
með lægðum til bcggja hliða. Líklegt má telja að hillur eða borð hafi