Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 04.01.1986, Page 27
KÚA13ÓT í ÁLFTAVERI VI
59
Mynd 22. Norðausturlwm kirkjutóttar. Greina má leifar af fóttré undan þili. Ljóstn. Gísli
Gestsson. Fig. 22. The north east corner of the church. Remains of a wainscot. Photo Gísli
Gestsson.
í tóttinni varð vart fleiri ummerkja eftir timburvcrk, sem nú skal frá
greina.
Með veggjum voru trjáleifar og moldarstallar sem bcnt gætu til þcss,
að húsið hafi verið þiljað að innan. Tekið skal fram að moldarstallarnir
voru of mjóir til þess að vera undan bekkjum. Meðfram norður- og
austurvegg voru leifar af tré, sem legið hefur lárétt á stoðarstcinum.
Virtist hafa verið allstór ígreypt nót á efri hlið þess, og að þetta hafi
verið fóttré undan þili. Allt var þetta illa komið af fúa og vantaði alveg
neðra borð á timbrið. Pví varð ekki unnt að taka það upp, en ljós-
myndir varpa skýru ljósi á þetta.