Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Qupperneq 65
HIÐ FÉLAGSLEGA RÝMI AÐ GRANASTÖÐUM
69
Á báðum stöðunum liggur fyrir ákveðin þörf á því að gera sig sýnilega
og að skipuleggja búsetu sína á þann veg að hún verði skiljanleg, bæði
fyrir þá sem búa þar og hina sem ekki gera það.
íbúarnir leitast við að gefa vistarverum sínum og öðrum húsum það
form eða tjáningarform og útlit, sem þeir sjálfir og aðkomumenn skilja. Og
það er aðeins mögulegt ef íbúarnir fylgja þeim lögum og reglum, sem til
eru í samfélaginu um það hvernig byggja skuli hús, hvernig þau eigi að
líta út, hvar þau eigi að vera í samhengi við hin húsin o. s. frv.
Ekki hafa margir „heilir" víkingaaldarbæir verið grafnir upp á Islandi.
Þó má nefna Herjólfsdal í Vestmannaeyjum (Margrét H. Auðardóttir
1989). En að sjá eitthvert munstur í bæjarstæði Herjólfsdals er varla rnögu-
legt. Bæjarstæðið á að endurspegla 400-600 ára búsetu, en er aðeins skipt
upp í eldra og yngra byggingaskeið. Þó má ganga út frá því sem vísu að
sögu bæjarins megi skipta í fleiri skeið ef hann er jafn gamall og sagt er.
Samkvæmt Gísla Gestssyni þurfti að endurbyggja hús á Suðurlandi sem
byggt var úr torfi og steini eftir 60-100 ár (Gísli Gestsson 1982:168). Hvítár-
holt mætti einnig nefna (Þór Magnússon 1972). Þó er því þannig farið þar
að ekki var nákvæmlega gerð grein fyrir staðsetningu gripanna og ekki
hægt að ganga að því vísu hver húsanna voru samtíða og hver ekki.
Skálinn að Granastöðum er á miðju bæjarstæðinu og umkringdur öðr-
um húsum. í miðjum skálanum er herbergi III, aðalvistarveran, og í því
miðju er langeldurinn. Ef dreginn er hringur með 10 m radíus frá miðju
langeldsins, hafnar aðeins skálinn og viðbyggingar hans inni í hringnum.
Ef aftur á móti dreginn er hringur með 20 m radíus frá sama stað, hafna
Öll þau hús (nema smiðjan), sem þekkt eru á Granastöðum, innan við
þann hring (sjá mynd 12). Hús 4, jarðhýsi, sem ekki er rannsakað enn, ligg-
ur að mestu fyrir innan stærri hringinn.
Innri hringinn getum við kallað einkahringinn, en þann ytri getum við
kallað fjölskylduhringinn eða stór-fjölskylduhringinn. Svæðið fyrir utan
hringana getum við þá kallað hið opinbera svæði. Fyrir innan innri hring-
inn má ætla að tengsl og samskipti hinna einstöku fjölskyldumeðlima hafi
verið ríkjandi. Fyrir innan ytri hringinn voru trúlega samskipti tengd
virinu meðlima (stór)fjöldskyldunnar ríkjandi, eða öllu heldur einkennandi.
Utan við hringana má síðan ætla að tengsl við aðra bæi hafi verið ráðandi.
Sem dæmi um hvernig tengsl gátu verið sem flæði frá einum stað í ann-
an, t. d. úti - inni, hráefni - afurðir, framleiðsla - neysla, heima - að heim-
an o. s. frv., getur mynd 13 verið.
Nákvæm mörk milli einstakra tengsla er ekki gerlegt að skilgreina,
alveg eins og mörk annarra andstæðna eru alltaf fljótandi, t. d. á milli
karla og kvenna.