Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Blaðsíða 152
156
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
hálsfesti úr Mjóadal, silfursjóðurinn frá Sandmúla, fjalir frá Flatatungu, tábagall frá Þingvöllum,
fjölin frá Gaulverjabæ og hluti af gullsaumaða skrúðanum frá Hólum. Vegna þess að tíma-
mörk sýningarinnar nær okkur í tíma var árið 1200 þá skipuðu handrit og áhrif ritlistar þar
veigamikinn sess. Því var þar úrval merkustu handrita okkar, bæði úr Stofnun Arna Magnús-
sonar á Islandi, Landsbókasafni og öðrum handritastofnunum í nágrannalöndum okkar.
Vegna flutnings og pökkunar íslensku gripanna þurftu starfsmenn safnsins að ferðast
nokkuð. Halldóra Asgeirsdóttir og Lilja Ámadóttir fóru sem sendimenn til Kaupmannahafn-
ar í lok febrúar með gripina þar sem þeir sameinuðust dönskum gripum þar til að verða flutt-
ir landleiðina til Parísar. Kristín Huld Sigurðardóttir pakkaði gripunum upp og kom fyrir i
París. Margrét Gísladóttir pakkaði þeim niður þar í júlí, og Halldóra fór til Berlínar til að
pakka þeim upp og koma fyrir í Altes Museum. Lilja fór til Berlínar um miðjan nóvember til
að pakka þar niður. Margrét fór til Kaupmannahafnar í desember til þess að pakka upp í
Kaupmannahöfn. Lilja Árnadóttir, safnstjóri, sótti alþjóðaþing safnamanna (ICOM) í Quebec
í Kanada 19.-26. september. Þóra Kristjánsdóttir, sem starfað hefur jöfnum höndum í sýning-
ardeild og við eftirlit og rannsókn kirkjugripa, sótti námskeið í sýningarhaldi í Holstebro í
Danmörku dagana 5.-10. september.
Skrdning
Eitt brýnasta verkefni safna er skráning safnmuna. Engin frumskráning fór fram á árinu
1992. Á árinu fékkst fjárveiting frá forsætisráðuneyti til þess að hefja innslátt á eldri skrám
safnsins inn á tölvuskrá þess, Aðalskrá. Slegið var inn í fjarvinnslu á fjarvinnslustofunni
Skeggja á Bakkafirði. Málið átti sér alllangan aðdraganda og hafði Byggðastofnun milligöngu
í því þar sem hún hafði fengið það verkefni að verkefnavæða fyrirtæki af þessu tagi á lands-
byggðinni. Að yfirveguðu ráði var gengið til samninga við Skeggja og gerð verkáætlun sem
hljóðaði upp á um 5.600 færslur. Gafst þessi háttur vel. Verkefninu verður haldið áfram á
árinu 1993.
Samningar
Á árinu voru gerðir tveir samningar um framleiðslu minjagripa, sem eru eftirlíkingar á
gripum í Þjóðminjasafni. Annars vegar var samið við Glaðni h/f í Hveragerði um gerð minja-
gripa eftir „Þórslíkneski" (Þjms. 10880) og hinsvegar við Iceland Review í Reykjavík að fram-
leiða veggstykki með eftirmyndum eða stílfærðum eftirlíkingum af myndrænu efni í safninu.
Jafnframt var hafist handa um að reyna að stöðva óleyfilega framleiðslu minjagripa, sem
eru eftirmyndir af gripum safnsins.
Aðföng
AIls voru 163 færslur í aðfangabók safnsins fyrir árið 1992, þar af var 101 á ljósmyndum
en í skýrslu myndadeildar er getið um merkustu aðföng á því sviði. Helstu gripir sem safn-
inu bárust eru þessir: Rómverskur peningur, sem fannst í hleðslu í Skansinum í Vestmannaeyj-
um, forngripir þeir sem fundust við fornleifarannsókn í Kópavogi, nokkrir gripir úr rústum í
Þjórsárdal, kirkjuhurðarhringur af Búðakirkju á Snæfellsnesi, innsigli eins og það sem Gunn-
laugur Briem Guðbrandsson á Grund átti, útskornir taflmenn úr íslensku birki og tóbaksponta
eftir Jóhannes Helgason í Gíslabæ. Allmikið berst af fatnaði frá þessari öld sem og búshlut-
um síðari tíma. Þá fékk safnið til varðveislu marga góða gripi og húsgögn úr dánarbúi Ásu
Þorsteinsdóttur Kristensen í Lækjargötu 10 í Reykjavík.
Gefendur
Fer hér á eftir listi yfir gefendur safngripa á árinu 1992:
Þór Guðjónsson, R., Guðrún Sigurðardóttir, Akureyri, Skúli Helgason, R., Inga Lára Bald-
vinsdóttir, Eyrarbakka, Bergþóra Jóhannsdóttir, R., Ólöf Friðjónsdóttir, Leirárgörðum, Sig-
rún Einarsdóttir, Klettum, Byggðasafn Vestmannaeyja, Elsa E. Guðjónsson, R., Nanna