Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Blaðsíða 150
154
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
myndefnið. Stóð hún til 31. mars, var vel sótt og góður árangur af henni. Umsjón með sýn-
ingargerð hafði Inga Lára Baldvinsdóttir, deildarstjóri myndadeildar, en uppsetningu önn-
uðust ásamt henni Margrét Gísladóttir, Þóra Kristjánsdóttir og Arni Guðmundsson.
11. apríl var opnuð í Bogasal sýningin Skálholt. A henni gat að líta flesta þá gripi í safninu
sem kornnir eru frá Skálholti auk þess sem fengið var að láni úr Skálholtskirkju aitarið úr
kirkju Brynjólfs Sveinssonar biskups og mynd eftir Jón Helgason biskup af Skálholti. Efnt var
til sýningarinnar í tilefni af útkomu bókarinnar Skálholt - Skrúði og áhöld eftir Hörð Agústs-
son. Bókina gaf Hið íslenska bókmenntafélag út, en hún er sú þriðja í röðinni Staðir og kirkjur,
sem félagið hefur gefið út í samvinnu við Þjóðminjasafn Islands. Þóra Kristjánsdóttir og
Margrét Gísladóttir sáu um gerð sýningarinnar sem stóð til maíloka.
Sumarsýning safnsins 1992 bar heitið Húsvernd á Islcmdi. Markmið hennar var gera grein
fyrir því sem gert hefur verið í verndun gamalla húsa á Islandi allt frá því það starf hófst í
byrjun þessarar aldar. Efnið á sýningunni var að stórum hluta ljósmyndir, textar og teikning-
ar. Myndefnið var úr myndasöfnum Þjóðminjasafnsins en auk þess lögðu þeir Hörður
Agústsson, Þorsteinn Gunnarsson og Hjörleifur Stefánsson til efni. Nokkrir vel valdir hús-
hlutar voru þar og bar hæst milligerðina innan úr Bessastaðakirkju frá 18. öld, sem varðveitt
er í safninu, og dyraumbúnað frá bókhlöðunni í Flatey, sem fenginn var að láni. Nokkuð var
gert við milligerðina og sá Gunnar Smári Þorsteinsson smiður um trésmíðina en Kristján
Guðlaugsson málarameistari um málun. Faglega ráðgjöf veittu Þorsteinn Gunnarsson og
Hjörleifur Stefánsson arkitektar. Júlíana Gottskálksdóttir, deildarstjóri húsverndardeildar, sá
um gerð sýningarinnar, textasmíð og öflun efnis ásamt Þóru Kristjánsdóttur. Myndvinnsla
fór fram á myndastofu safnsins. Til aðstoðar við uppsetningu voru þau Margrét Gísladóttir
og Árni Guðmundsson. Gefin var út sýningarskrá með grein eftir Þór Magnússon sem hann
nefnir Húsafriðun á Islandi, en einnig fjallar Júlíana þar um sýninguna og getur helsta efnis
hennar. Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, opnaði sýninguna þann 27. júní og stóð
hún til 8. nóvember.
24. október opnaði menntamálaráðherra, Olafur G. Einarsson, sýninguna Jómsvíkingar á
þriðju hæð safnins. Hún var fengin að láni frá þjóðminjasafninu í Sczcecin (fyrrum Stettin) í
Póllandi. Þar gat að líta úrval gripa, sem fundist hafa á löngu árabili við uppgröft á staðnum
Wolin, sem stendur við mynni Oder. Þar var í margar aldir verslunarstaður og er ljóst af því
sem fundist hefur að þangað hafa lagt leið sína m.a. menn af norrænum uppruna. Sýningin
var unnin í samvinnu áðurnefnds safns í Póllandi og borgarsafnsins í Hróarskeldu og hafði
áður verið sýnd á nokkrum stöðum í Danmörku og í Lundi í Svíþjóð. Tildrög þess að sýning-
in var fengin hingað má rekja til þess að hópur manna, sem Iesið hafði Jómsvíkingasögu
undir leiðsögn Jóns Böðvarssonar heimsótti Pólland og kynntist Dr. Wladislaw Filipowiak
fornleifafræðingi, en hann hefur frá upphafi unnið við ofangreindar fornleifarannsóknir.
Pálnatókavinafélagið svonefnda veitti safninu liðveislu við undirbúning sýningarinnar og
tóku Tryggvi Sigurbjarnarson, Guðmundur Ágústsson og Hildur Bjarnadóttir virkan þátt
með því að sitja í undirbúningsnefnd með Lilju Árnadóttur og Árna Björnssyni. Margir af
starfsmönnum safnsins lögðu hönd á plóg við uppsetningu sýningarinnar, sem tókst með
ágætum. Þungi þess var þó á Margréti Gísladóttur auk þess sem Halldóra Ásgeirsdóttir,
Kristín Sigurðardóttir, Mjöll Snæsdóttir og Herdís Tómasdóttir aðstoðuðu. Viku fyrir opnun
kom Filipowiak við annan mann, Wladyslaw Garzynski, til að segja fyrir um uppsetningu og
fyrirkomulag. Gefin var út sýningarskrá með þýddri samantekt um rannsóknirnar, grein
eftir Jón Böðvarsson um ferðina til Wolin og grein Olafs Halldórssonar um Jómsvíkinga-
sögu. Auk þess var á boðstólum sýningarskrá á dönsku sem gefin hafði verið út í Hróars-
keldu. 25. október hélt Filipowiak fyrirlestur í safninu sem hann nefndi „Jómsborg-Wolin í
ljósi fornleifarannsókna". Hann flutti síðan fyrirlestur í boði Heimspekideildar Háskóla
íslands 26. október um „Siglingar og skipasmíðar í mynni Oder á sjöundu og tólftu öld". 5.
desember flutti dr. Ólafur Halldórsson handritafræðingur fyrirlestur um Jómsvíkingasögu og