Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Page 157
ÁRSSKÝRSLA 1992
161
spjaldskrá yfir safn Jóns Kaldals. Auk þess gerði hún drög að skrá yfir filmusafn Matthíasar
Þórðarsonar og af filmusafni Ole Villumsen Krog. Halldór J. Jónsson, sem var í hlutastarfi
við deildina, vann við skráningu á safnaukum Mannamyndasafnsins. Hann skráði safnauka
áranna 1989, 1990 og 1991 og hélt áfram við að gera sérskrá yfir grafíkmyndir í Ljós- og
prentmyndasafni. Guðbjörg Gissurardóttir, nemi, sem vann við deildina um tveggja mánaða
skeið, gerði spjaldskrá yfir plötusafn Olafs Oddsonar frá Fáskrúðsfjarðarárum hans og nafna-
skrá yfir safn af eftirtökum mannamynda af íbúum Flateyjar á Breiðafirði.
ívar Brynjólfsson, ljósmyndari deildarinnar, gerði eftirtökur eftir plötum í ýmsum plötu-
og filmusöfnum og jukust afköst við þessi störf til muna eftir kaup á nýrri framköllunarvél á
árinu. Auk þeirra plötusafna, sem gerðar voru eftirtökur eftir, var gengið frá nokkrum plötu-
og filmusöfnum í sýrufrí umslög.
Á árinu voru haldnar þrjár sýningar á vegum myndadeildar og var tækifærið notað til að
afla upplýsinga um myndefnið hjá sýningargestum. Sú fyrsta var haldin í Bogasal Þjóðminja-
safnsins og voru þar sýndar eftirtökur eftir myndum úr söfnum Olafs Magnússonar, Jóns J.
Dahlmann og Lofts Guðmundssonar auk ýmissa óþekktra frummynda úr fórum safnsins.
Ágætur árangur náðist við greiningu mynda, þó einkum á eftirtökum. Gestir á sýninguna
voru 1.258. Önnur sýningin var á eftirtökum úr safni Jóns Guðmundssonar og Guðmundar
Jónssonar frá Ljárskógum og skráðu 222 gestir sig í gestabók sýningarinnar. Sýningin var í
Bogasal og fékkst um 50% greining á myndunum á sýningunni. Þriðja sýningin var haldin á
Vopnafirði í samvinnu við sögufélagið á staðnum og hafði Gunnlaugur Gunnarsson bók-
bindari milligöngu um hana. Sýndar voru um 100 myndir sem Jón J. Dahlmann tók á Vopna-
firði 1913-1914. Ágætis árangur varð af þessu sýningarhaldi. Þá má loks geta smásýningar á
ýmsum gerðum ljósmynda í tengslum við opið hús á safninu.
Safnauki myndadeildar á árinu var 101 færsla í aðfangabók og hefur líklega aldrei verið
stærri í færslum talið. Meðal gjafa voru; blýantsteikning eftir Arngrím Gíslason af Aðalbjörgu
Sigurðardóttur, tæpar 30 ljósmyndaplötur eftir Þorlák Sverrisson ljósmyndara, syrpa af ljós-
myndum úr fórum Menningarsjóðs úr útgáfubókum sjóðsins, filmusafn Guðmundar Einars-
sonar frá Miðdal o.fl.
Geymsluaðstaða deildarinnar batnaði til muna á árinu er fest voru kaup á nýjum hilluein-
ingum. Á árinu var unnið að nákvæmri skrá yfir plötu- og filmusöfn í Þjóðminjasafni. Drög
að skránni hafa legið fyrir, en unnið var að því að gera þau fyllri m.a. með nákvæmari taln-
ingu á filmum og plötum í einstökum söfnum.
Á árinu voru skráðar fyrirspurnir til deildarstjóra símleiðis 201 en heimsóknir vegna
myndaöflunar 210 talsins. Þessi skráning er ekki tæmandi, en gefur nokkra vísbendingu um
þjónustuþáttinn í starfsemi deildarinnar. Fjöldi útsendra reikninga fyrir ljósmyndavinnu var
um 150, sem er 50% aukning frá seinasta ári. Auk þessarar þjónustu veitti ljósmyndari deild-
arinnar öðrum deildum innan safnsins margvíslega þjónustu, munu það hafa verið um 100
verkefni. Stærð þeirra verkefna var mjög misjöfn. Flest verkefni voru unnin fyrir húsvernd-
arsvið. Stærsta einstaka verkefnið af þessum toga á árinu var myndavinnsla fyrir sýninguna
Húsvernd á íslandi.
Bókasafri
Bókasafn Þjóðminjasafns Islands er fyrst og fremst rannsóknarbókasafn. Þjóðminjasafnið
er rannsóknar- og vísindastofnun og sem slík er afar brýnt að fræðimenn stofnunarinnar hafi
greiðan aðgang að þeim gögnum, sem þeim ber. Bókasafnið er ekki rekið sem útlánasafn fyr-
ir almenna notendur, heldur er eitt af höfuðmarkmiðum bókasafnsins að þjóna sérfræðing-
um og starfsfólki Þjóðminjasafnsins og öðrum aðilum, sem tengjast starfsemi þess. Öllum er
þó heimill aðgangur að safninu til lestrar og fræðistarfa meðan húsrúm leyfir og hefur að-
sókn aukist. Bókavörður veitir alla þá aðstoð og upplýsingaþjónustu sem hann hefur tök á
og berast fyrirspurnir hvaðanæva, skriflega, símleiðis og munnlega.