Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Side 159
ÁRSSKÝRSLA 1992
163
heimildum því nú gefst notendum aðgangur að öllum ritum þessara tveggja safna, auk þess
ritum Bókasafns Kennaraháskóla íslands og einnig Bókasafns Seðlabanka Islands. I fyrstu
var eingöngu hægt að Ieita í Gegni, en 25. nóvember var hægt að hefja skráningu í kerfið.
Skráning í bókasafnskerfið Gegni er hafin hér á Bókasafni Þjóðminjasafnsins, en ekki hefur
unnist tími til að skrá mikið vegna daglegra anna í bókasafninu.
Safnkenrtsla
Á vormisseri gegndu tveir einni stöðu safnkennara, þær Berglaug Skúladóttir og Guðrún
Haraldsdóttir, 25. ágúst sl. tók Sigrún Ásta Jónsdóttir við starfinu, en þá hafði Bryndís Sverr-
isdóttir, sem verið hafði safnkennari frá árinu 1983, sagt stöðu sinni lausri eftir að hafa verið í
leyfi frá árinu 1990. Tilhögun kennslunnar var með hefðbundum hætti, en í því felst að tekið
er á móti einum bekk í einu og í eina klukkustund. Safnkennari byrjar á því að kynna verk-
efnið og leiða nemendur inn í úrvinnslu þess, en þeir vinna það síðan hver fyrir sig eða í
laustengdum hópum, með aðstoð safnkennara og bekkjarkennara. Þessi tilhögun gengur
mjög vel, nemendur eru flestir áhugasamir og vinnusamir og kennarar eru yfirleitt jákvæðir.
Hugleiddir hafa verið aðrir kostir í safnkennslu og verður unnið að því á næsta ári þar sem
það krefst mikills undirbúnings.
Á árinu var ljóst að vinna þyrfti upp ný verkefni og voru útbúin tvö verkefni sem komu
að nokkru leyti í stað eldri verkefna sem dræm aðsókn var að. Fyrra verkefnið er tengt kristni-
fræðslu fyrir fjórða og fimmta bekk en hið seinna sögukennslu fyrir sjötta og sjöunda bekk.
Báðum verkefnum var vel tekið af nemendum sem kennurum. Mikil fjölgun varð í aðsókn
fjórða og sjöunda bekkjar í kjölfarið. Þá voru nokkur sérverkefni búin til. Tvö voru urn Jóms-
víkingasýninguna, annað fyrir fimmta bekk, í tengslum við landnámsverkefni og hið þriðja
fyrir þriðja bekk, en það hafði verið sérstaklega pantað. Þá var unnið að gerð tilraunaverk-
efnis um Sturlunga og fyrstu aldir kristni hérlendis, fyrir sjötta bekk en um það hefur ítrekað
verið beðið. Að öllum líkindum verður þetta verkefni fullunnið og það haft á boðstólum fyrir
næsta skólaár. Þá voru tvö verkefni útbúin vegna jólasýningar safnsins. Annað fyrir átta ára
og yngri og hið síðara fyrir níu ára og eldri. Þá hafa verið unnin sérstök verkefni fyrir fyrstu
sjö bekki grunnskólans, þótt nokkuð vanti á að fylla þá mynd algerlega. Þá vantar verkefni
fyrir elstu bekki grunnskólans. Það er forgangsverkefni á komandi ári að bæta úr því. Einnig
vantar kennarahefti með verkefnunum, þar sem fram kæmi nákvæm kynning á verkefninu
ásamt með hugmyndum um frekari úrvinnslu.
Á vormisseri komu 4.220 einstaklingar í 212 hópum og á haustmisseri komu 2.900 ein-
staklingar í 127 hópum, eða samtals rúmlega 7.000 nemendur í um 300 hópum. Þar af komu
um 300 hópar frá grunnskólum, en það voru tæplega 100 skólar sem sendu nemendur á safn-
ið, þar af voru rúmlega 20 skólar utan höfuðborgarsvæðisins. Langfjölmennasti aldurshópur-
inn var tíu ára börn, (þ.e. fimmti bekkur) sem endranær, en alls komu tæplega 2.500 fimmtu
bekkingar, í um 100 hópum. Mun jafnari dreifing í aldurshópa náðist á haustönn, en þó
nokkur fjölgun varð á kornu nemenda úr fjórða, sjötta og sjöunda bekk eins og áður segir.
Safnkassar voru tveir sem áður. í safnkössunum er annars vegar að finna tóvinnuáhöld
og Ieiðbeiningar um ullarvinnslu fyrr á öldum og hins vegar er þar að finna gömul leikföng
og leiðbeiningar um hvernig gamlir leikir fóru fram. Það hefur ekki verið mikill áhugi á safn-
kössunum og er líklegt að eitthvað þurfi að endurskoða þá. Til dæmis hefur verið hugleitt að
útbúa skyggnumyndaraðir sem kæmu sér vel fyrir skóla sem ekki komast á safnið og fleiri
hugmyndir eru í gangi.
Nesstofnsafn
Forstöðumaður Nesstofusafns er Kristinn Magnússon. í september, árið 1991, var Nils
Kjartan Guðmundsson ráðinn til safnsins í starf gæslumanns. Hápunkturinn í starfsemi Nes-
stofusafns á árinu var án efa formleg opnun safnsins þann 10. júlí. Höfuðáhersla var lögð á