Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Síða 175
ÁRSSKÝRSLA 1992
179
íslands, og fylgdarliði hennar og henni fært að gjöf eintak af teikningum sr. Jóns M. Guð-
jónssonar, listaverkaöskju, sem safnið gaf út ásamt Islandsmyndum sf. í árslok 1990.
Fastráðnir starfsmenn við Byggðasafn Akraness og nærsveita eru sem fyrr tveir, Gunn-
laugur Haraldsson og Guttormur Jónsson og færðu þeir á liðnu ári 108 safnnúmer í aðfanga-
bók safnsins, en það er u.þ.b. sá fjöldi gripa sem safninu bárust á árinu. Drýgstur hluti mun-
anna kom úr búi sr. Jóns M. Guðjónssonar og systranna Ásu og Svövu Finsen á Akranesi.
Meðal þeirra eru píanó frá síðustu aldamótum, stúdentshúfa og hempa fyrmefnds sr. Jóns og
stássstofuhúsgögn úr búi hjónanna Ingibjargar og Ólafs Finsen, læknis á Akranesi. Þá festi
safnið sér tvo gamla vélbáta, sem þó em ókomnir til safnsins, enda er öðmm þeirra ennþá
haldið úti til veiða. I fyrsta lagi er um að ræða Húna AK-124, skarsúðaðan vélbát, og í öðru
lagi Bjarna SH, skarsúðaðan þilfarsbát.
Á árinu lágu framkvæmdir nær algjörlega niðri við þau verkefni, sem hæst hafa risið í
starfsemi safnsins á undanförnum árum, þrátt fyrir að mörgu sé þar ólokið. Orsakast það
aðallega af fjárskorti. Þó var lokið við viðgerð á þilfari kútters Sigurfara og svokallað Garða-
hús málað að utan. Unnið var að ýmsum endurbótum á fastasýningum safnsins. Tekið var í
notkun hliðarrými við sjóminjadeildina og hefur verið áformuð uppsetning á ýmsum sjó-
minjum þar. Fjöldi skráðra safnnúmera í árslok var 2.900, en ætla má að raunverulegur fjöldi
muna í eigu safnsins sé á bilinu 5.000-6.000, auk ljósmynda, skjala og bóka.
Byggðasafn Borgarfjarðar
Ætla má að um 2.000 gestir hafi heimsótt Byggðasafn Borgarfjarðar, sem er til húsa í
Safnahúsinu við Bjarnarbraut í Borgarnesi.
Á árinu barst safninu fjöldi góðra muna. Má þar nefna búsáhöld, gamla peninga, veiðar-
færi, margar gerðir af heflum, auk ýmissa annarra muna. Alls voru skráðir 76 nýir munir á
árinu og eru nú til í safninu tæplega 3.000 munir en auk þeirra er margt muna í geymslu sem
eru óskráðir. Safninu voru ekki einungis færðir munir heldur komu stofnanir og einstakling-
ar færandi hendi og létu háar fjárhæðir af hendi rakna. Sparisjóður Mýrasýslu færði safninu
1,5 milljónir og Kristrún Guðmundsdóttir gaf safninu 50 þúsund kr. Koma peningarnir í góð-
ar þarfir þar sem útlit er fyrir að klæða verði hús byggðasafnsins að utan á næsta ári.
Safnvörður Byggðasafnsins í Borgarnesi er Guðmundur Guðmarsson.
Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla
Alls heimsóttu 1.083 gestir Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla árið 1992 en safnið er
til húsa í Norska húsinu í Stykkishólmi. Á árinu var sett þar upp ein sýning utan safnsins og
ein sýning í safninu, auk þess sem unnið var að því að skipuleggja framtíðarsýningu í húsinu.
Þóra Magnúsdóttir, forstöðumaður byggðasafnsins, hefur faglega umsjón með Byggða-
safni Ólafsvíkur og Sjómannagarðinum á Hellissandi. Byggðasafn Ólafsvíkur er í Pakkhús-
inu í Ólafsvík. Þar er jafnframt rekin upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn á sumrin og því er
erfitt að áætla fjölda gesta á síðasta ári. Þar var sett upp kirkjumunasýning í tilefni 100 ára
kirkjuafmælis í Ólafsvík, biskupsvisitasíu og 25 ára byggingarafmælis kirkjunnar. Munirnir á
sýningunni voru í eigu safnsins, kirkjunnar og einstaklinga. Biskup opnaði sýninguna og
voru gestir um 120. Sjómannagarðurinn á Hellissandi er eign Sjómannadagsráðs. Safnið bygg-
ist upp á endurgerðri sjóbúð sem var nálægt þessum stað. Einnig er sýningarhús sem byggt
er utan um Blika, sem er einn af allra elstu bátum hérlendis. Þar hefur einnig verið sett upp
sýning á munum tengdum sjávarútvegi og komu um 3.000 gestir að sjá hana.
Byggðasafn Dalvíkur
Engin sérsýning var haldin á árinu í Byggðasafni Dalvxkur. Þrátt fyrir það heimsóttu 3.343
gestir safnið á árinu. 6. desember 1991 var opnuð minningarstofa um dr. Kristján Eldjám for-
seta í tilefni þess að þann dag hefði hann orðið 75 ára. Stofan hlaut nafnið Kristjánsstofa. Árið