Norðurljósið - 01.01.1978, Page 6
6
NORÐURLJÖSIÐ
D.C. (höfuðborg Bandaríkjanna, þýð) eru þrír aðal-
flokkar í stjórnmálum: Republikanar, Demokrat-
ar og Hanastéls (cocktail) flokkurinn. Stjórnmála-
menn Sovét-manna nota þann flokk skynsamlega.
Djöfullinn er að tortýna Bandaríkjunum með flösk-
unni sem brugguð er með tárum, innihaldið þykkt með
blóði, smekkbætt með dauða og blandað með sérhverri
sorg, sem unnt er að ímynda sér.“
Áfengið tortýnir heimilunum. Talið er, að 60% af
öllum erfiðleikum á heimilum séu sprottin af drykkju-
skap. Hæstaréttardómari nokkur taldi, að 72% af þeim
hjónaskilnuðum, sem hann leyfði, væru að kenna á-
fenginu. En eins og heimilunum farnast, þannig farn-
ast þjóðinni.
„Unga fólkið nú á dögum haltrar, hrasar, reikar og
steypist niður í svelginn á þessari hræðilegu hringiðu
siðferðislegs brjálæðis, af því að feður og mæður og
fullorðið fólk í þessu landi hefur leitt það niður þessa
götu. Það er að reyna að ná mæðrum sinum og feðr-
um.“ (Sam Morris.)
Hvað segir Guð um þennan mikla tortýnanda?
Fordæming sterks drykkjar er mjög skýr í biblíunni.
Það hefur verið sagt, að „162 greinar í biblíunni snerti
drykkjuskap. Ritningin segir meir um þetta en hún
gerir um lygi, hórdóm, þjófnað, sviksemi eða jafnvel
guðlast. Orðskviðirnir 20.1.: „Vínið er spottari, sterkur
drykkur glaumsamur, og hver sá, er drukkinn reikar,
er óvitur.“ í Orðskv. 23.31.,32. grein er ritað: „Horf
þú elcki á vínið, hve rautt það er, hversu það glóir í
bikarnum og rennur Ijúflega niður. Að síðustu bítur
það sem höggormur og spýtir eitri sem naðra.“ Billy
Sunday (víðkunnur vakningaprédikari snemma á þess-
ari öld. Þýð.) lýsti yfir þessu: Jón Byggkorn er versti
óvinur Krists, hann er besti vinur djöfulsins" „Áfeng-
ið er djöfullinn í fljótandi mynd.“
Áfengið hjálpar til að fyrirdæma sálina. Eina syndin,
sem fyrirdæmir sálina, er vantrú. En áfengið ryður van-
trúnni braut og því að hafna Kristi sem frelsara. Sam
kvæmt 1 Korintubréfi 6.10. munu drykkjumenn „ekki
guðsríki erfa.“ Jesaja 5.14. fræðir okkur á þessa leið■
„Fyrir því vex græðgi Heljar, og hún glennir ginið sem
mest hún má.“
„Og fjárhættuspilarinn fundinn var þar,
og fátæklegt, útkulnað drykkjumanns skar.
Og vínsalinn líka, sem veitti þeim vin.
Og valdhafi, er fékk honum leyfisbréf sín.
Með válegum gráti og veini þeir fóru,
þar voru þeim tilkynntir dómarnir stóru.
Þeir óskuðu’ að fjöll vildu yfir þá hrynja.
En of seint kom bænin, þeir loks máttu skynja.“
Höfundur ókunnur. (Lauslega þýtt. S.G.J.)
Það er til von handa þeim, sem eru ðsjálfbjarga
og hjálparlausir.
í guðspjalii Lúkasar, 19. kafla og 10. grein er oss
gefið þetta góða orð: „Því að Manns-sonurinn er kom-
inn til að leita að hinu týnda og frelsa það. „í guð-
spjaili Jóhannesar 8.36. stendur: „Ef því sonurinn
gerir yður frjálsa, munuð þér verða sannarlega frjáls-
ir.“ Og í 1. bréfi Jóhannesar lesum vér: „Og blóð sonar
hans, Jesú Krists, hreinsar oss af allri synd.“
Vinur minn, Drottinn Jesú Kristur er sigurvegari
tortímandans mikla. Vilt þú í dag taka á móti honum
sem frelsara þínum og Drottni þínum? (Þýtt úr „The
Sword of the Lord, 24. 6. 1977.) S.G.J. þýddi.
Ranglátur ávinningur
Eftir dr. John R. Rice.
Vera má að einhverjum blæði undan sverðshöggum
dr. Rice, en sannleikann verður Norðurljósið að segja
þrátt fyrir það. Greinin var rituð 1976. Ritstj.)
Menn þiggja mútur hjá þér til þess að úthella blóði,
þú hefur tekið fjárleigu og vexti (bannað í Iögmálinu)
og haft af náunga þínum með ofríki, en mér hefur
þú gleymt, segir Herrann Drottinn. En sjá ég slæ hönd-
um saman yfir því rangfengna fé, sem þú hefur dreg-
ið þér, og yfir blóðskuld þeirri, sem í þér er.“ (Esekiel
22.12.13.)
Oss furðar ekki, að biblían segir: „Fégirndin er rót
alls þess, sem illt er. Af fégirnd selja menn saurlífis-
rit. Af fégirnd selur skækjan líkama sinn og drýgit
hina auvirðilegustu synd.
Ríki bóndinn, sem Kristur segir frá, ráðgerði, hvern-
ig hann gæti grætt meira. En „ ... á þessari nóttu verð-
ur sál þín af þér heimtuð, og hver fær þá það, sem
þú hefur aflað?‘“ (Lúk.12.)
í fyrirsögnum kaflanna hér á eftir bendum vér á
þrjár leiðir hræðilegar, sem óguðlegt fólk fer til að
græða peninga.
1 Læknir, sem framkvæmir fóstureyðingu í gróða-
skyni, er morðingi.
Reiður Guð mun telja Bandaríkin sek um úthellingu
saklauss blóðs einnar milljónar myrtra barna síðastlið-
ið ár. (1,276,000 var talan, sem birt var í „Sverði
Drottins“ árið í fyrra 1977. Þýð.) Þetta var gert með
samþykki þingmanna, lækna og samþykki óguðlegra
kvenna. Þeir verða að mæta Guði sem morðingjar.
2. Framleiðendur og seljendur tóbaks græða fé ó-
heiðarlega.
Þegar ég fyrir nokkru síðan predikaði í Winston
Salem, Norður-Carolínu, í tóbakslandinu miðju, kom
ég fram með þessa ábendingu: „Fyrst 200,000 þúsund
manns munu deyja af lungnakrabba árlega sem orsak-
ast af vindlinga reykingum, hvers vegna blátt áfram
biðjum við ekki um það, að þeir, sem deyja úr lungna-
krabba, verði fólkið í tóbakslandinu?“
Þetta féll þeim ekki vel að hevra. Allir vita, að vindl-
ingar valda oft lungnakrabba. Oft fá þeir sem pípn
reykja, krabbamein í vör eða háls. Lungnaþan, sem
hindrar, að nægilegt súrefnismagn komist í blóðið,