Norðurljósið - 01.01.1978, Blaðsíða 50

Norðurljósið - 01.01.1978, Blaðsíða 50
50 NORÐURLJÖSIÐ var dálítið vonsvikin, örg, jafnvel dálítið beisk. Það var sorglegt, að ljómandi gáfum Jóns skyldi vera sóað á svona smámunalegan hátt. Með svona ævi, hverju gæti hann búist við að koma til vegar? Jæja, hún hafði séð hann og heyrt. Hún hafði hlust- að á predikun hins fræga Jóns Williams. Hún hafði ski’ið hana eftir kalda, er frá var talin stundarhrifning. Nú gat hún farið heim og óskað sjálfri sér til hamingju með, að hún hafði staðið hana af sér, að varanleg áhrif voru engin. Hvorki Jón Williams eða predikun hans höfðu nokkurt gildi fyrir hana. Köld í hjarta, jafndauð andlega sem áður, gekk hún ofan tröppurnar og út að strætinu. Hún leit á úrið sitt. Það var ekkert áliðið enn. Hugsandi stóð hún á strætiskantinum. Síðan hélt hún áfram. Rámt óp heyrðist, ískur í hemlum. Ofbirta dans- andi Ijósa einhvers staðar innan í höfði hennar. Síð- an kom myrkur og dauðaþögn. 5. kafli. I sjúkrahúsi. Hún var með höfuðverk og stingandi þraut í aug- unum. Hún lauk þeim upp — og sá ekki neitt. Hún reyndi að setjast upp, en fann, að hún hafði ekki þrótt til þess. Þá sagði þýð rödd rétt ofan við höfuð hennar: „Það er ekkert að yður. Liggið bara kyrr.“ „Hvar er ég?“ spurði Jennifer með veikum rómi. „Þér cruð í sjúkrahúsi. Slys kom fyrir, og þér vor- uð fluttar hingað. Við urðum að binda um andlit yðar og byrgja augun. Hafið engar áhyggjur. Reynið aðeins að vera róleg.“ Hún lá kyrr og reyndi að átta sig. Smám saman rifjaðist allt upp, eða sumt af því. Salurinn, samkoman, gangan niður tröppurnar, hróp einhvers — hávaði, Ijós, þrautir. Eftir nokkra stund var henni borin fæða, og hjúkrun- arkona mataði hana. Eftir það heyrði hún aðra rödd, sem var róleg, en rödd yfirboðara. Hún fór að spyrja hana. Hún var spurð að nafni. Hún nefndi það, Jana Ascott. (Hún var þegar spurð: „Hvað, hún Jana Ascott.) heimilisfang hennar, ættingjar osfrv. Þá kom spuming, sem í sjálfu sér sýndi Jennifer mikið: „Þér voruð með dökk gleraugu. Þurfið þér að nota þau af einhverri ástæðu? Það virtist ekkert sérstakt við þau nema það, að þau vom lituð?“ Jennifer saup hveljur ofurlítið. Auðvitað, hún hafði komið úr salnum og gleymt að taka þau af sér. Inni í salnum hafði hún orðið þeim svo vön, að utan dyra stóð henni á sama um þau. Hún svaraði ekki. Hvað gat hún sagt? Ritningarorð- in, sem Jón hafði vitnað til, hljómuðu í eyrum hennar: „Hví Iæst þú vera önnur en þú ert?“ Deildar-hiúkrunarkonan var skarpvitur. Eftir litla bið grunaði hana, að leyndarmál eitthvert lægi á bak við þetta. Hún spurði hana ekki meir (henni til mikls léttis), en hélt áfram: „Bráðabirgða rannsókn okkar leiðir ekki í ljós, að bein hafi brotnað eða nokkuð þess konar. En þar sem þér eruð nú færar um það, mun einn af læknum okkar athuga yður nákvæmlega og gefa skýrslu." Deildar-hjúkrunarkonan yfirgaf hana þá. Eftir nokkra stund kom hún aftur með sjúkrahúss-lækni. Rannsókn hans var gagnger, og hann spurði margra spurninga, en mælti síðan: „Jæja, ungfrú Ascott, þér voruð mjög lánsöm, að þetta varð ekki verra. Engin bein brotin, engin inn- vortis meiðsl, enginn heilahristingur. En það sem veldur mér verulegum áhyggjum, eru þessi brotnu sól- gleraugu.... Andlit yðar og enni skárust af glerbrot- um, og nú verðum við að vera viss um, að engar flísar hafi farið í augu yðar. Á morgun verðið þér fluttar í augnlækninga sjúkrahús. Þeir geta þar athugað yður. Nú. kjúkrunarkona, gefið þér henni — “ Hann sagði eitthvað í Iágum hljóðum og fór. Jennifer var gefin tafla, og eftir nokkra stund sofnaði hún. Hún vaknaði við glamur í dislcum og tal um morgun- verð.... Hún fann, að hún var orðin svöng. Máltíðar sinnar naut hún, þótt hún væri mötuð. Með óstyrkum hlátri spurði hún, hvað það væri, sem hún borðaði. Hún gat ekki séð matinn, og komst að því, að hann þekktist ekki síður á útlitinu en bragðinu. Aftur var hví’dartími. Þá sagði rödd við hana: „Við erum nú tilbúnar að taka yður. Lyftið nú upp hand- leggjunum og haldið yður.“ Vafið hafði verið vel utan um hana, henni lyft upp og hún lögð á börur. Síðan var hún flutt út í sjúkrabifreið og farið með hana í algeru myrkri í leyndardómsfulla ferð. Hún heyrði blásturshijóð í strætisvögnum og bifreiðum, stansað og lagt af stað aftur, sem táknaði bið vegna umferðar- ljósa. Síðan kom hristingslaus akstur eftir bogadregnum vegi. Þá var hún aftur lögð á börur, borin eftir ein- hvers konar gangi og loks Iátin varlega niður í mjög velkomið rúm. Hún var síðan flutt í myrkvað herbergi. Þar rannsak- aði sérfræðingur augu hennar vandlega. „Hum,“ sagði hann aðeins. Það gaf ekki mikið til kynna. Síðan heyrði hún, að hann sagði: „Hjúkrunar- kona, látið á hana umbúðirnar aftur. Látið hana vera eins og hún er í viku til, þá skal ég líta á hana aftur.“ Hún var flutt aftur í rúmið. Þar lá Jennifer og hugsaði. Vika í viðbót. Þeir segja ekki mikið á þessum stöðum. Hún fór að velta því fyrir sér, hvernig hún gæti haldið út í heila viku í algeru myrkri, nálega skilin frá öllu, sem var að gerast í heiminum. Mundi foreldrum henn- ar hafa verið tilkynnt slysið? Mundu þau koma til að heimsækja hana og hvenær? Þá varð hún vör við einkennilegt hljóð, sem virtist koma frá sjúklingi í næsta rúmi. Skjálfandi rödd gamalmennis var að syngja í næsta rúmi:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.