Norðurljósið - 01.01.1978, Side 43
NORÐURLJÖSIÐ
43
slóð, sem leitar Drottins, stundar eftir augliti þínu,
þú Jakobs Guð.“
Með 7 grein gerbreytist efni sálmsins. Þó er það í
tengslum við efni fyrri hluta hans. Þessi kafli verður
best skilinn með hliðsjón af því, sem segir frá í 6.
kafla 2. Samúelsbókar, þegar sáttmálsörk Drottins er
flutt upp til Zíon. Davíð hefur látið ísrael safnast sam-
an. Fólkinu er vafalaust fylkt til skrúðgöngu upp til
Jerúsalem. í fararbroddi er örk Drottins. Hún er borin
af Levítum, sem áttu að annast burð hennar. Davíð
fer á undan henni og dansar þar af öllum mætti og
hoppar. Skrúðfylkingin kemur loks að hliðum Jerú-
salem. En þar eru menn á verði. Þá syngja þeir, sem
koma með örkina:
7. grein: „Þér hlið, lyftið höfðum yðar,
hefjið yður, þér öldnu dyr,
að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.“
8. grein. Þá spyrja verðirnir: ,,Hver er þessi konungur
dýrðarinnar?“
Þá svara söngavaramir: „Það er Drottinn, hin volduga
hetja, Drottinn, bardagahetjan.
9. grein: Þér hlið, lyftið höfðum yðar,
hefjið yður, þér öldnu dyr,
að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.“
10. grein: Aftur spyrja verðirnir: Hver er þessi kon-
ungur dýrðarinnar?"
Söngflokkurinn svarar aftur: „Drottinn hersveitanna,
hann er konungur dýrðarinnar."
Þá hefur verið lokið upp, og örkin er flutt í bústað
sinn. Þegar hún var komin þangað hófust veitingar.
Allir þeir, sem fylgt höfðu örkinni, fengu eina brauð-
köku, eitt kjötstykki og eina rúsínuköku. Síðan fóru
allir heim til sín.
Á táknmáli, sem Guð lét skrá svo margt í helgisiða-
lögmáli því, sem hann gaf ísrael, var örkin táknmynd
af Drottni Jesú Kristi. Allir þeir, sem kjósa að fylgja
honum, fá endurnæring og styrk frá honum, uns þeir
eru komnir heim til sín, sem er í hinni eilífu dýrð
hjá Guði.
Ert þú, sem lest þessar línur, komin í fylgdarlið
Drottins vors? Ef ekki, viltu þá ekki ákveða það NÚ
að vera með í skrúðgöngunni heim til hinnar eilífu
dýrðar Drottins? „Trú þú á Drottin Jesúm Krist, og
þú munt verða hólpinn.“ (Post.16.31.) S.G.J.
ÚR ANDLEGUM LJÖÐUM:
Senn vaknar dýrðardagur
og döpur nóttin fer.
Ó, friðarmorgunn fagur!
hve fagnar sál mín þér.
Sem ljómi ljóssins gyllir
hvert land og haf og strönd,
svo dýrðin Drottins fyllir
dýrleg himnalönd. S. G. J.
Híminn og jörð munu hverfa
„Fyrir ásjónu hans hvarf himinn og jörð.“
Opinberunarbókin 20.11.
„Og ég sá nýjan himin og nýja jörð, þvx að hinn
fyrri himinn og hin fyrri jörð var horfin. . . .“ (Opinb.
21.1.)
„Og sá, sem í hásætinu sat, sagði: „Sjá, ég geri
alla hluti nýja.“ (Opinb.21.5.)
„Og hann sýndi mér móðu lífsvatnsins, skínandi
sem krystall, og rann hún frá hásæti Guðs og lambs-
ins. . . Og beggja vegna móðunnar var lífsins tré, sem
ber tólf sinnum ávöxt, á mánuði hverjum gefur það
ávöxt sinn, og blöð trésins eru til lækningar þjóðunum.“
Finnst ekki fleirum en mér, að þetta sé óleysanleg
ráðgáta: að fólkið á hinni nýju jörð geti þarfnast lækn-
ingar? Mér hefur komið til hugar lausn á henni.
í Sálmi 105.8. talar Davíð um Sáttmálann, sem
Drottinn hafi „gefið þúsundum kynslóða."
I 5. Mósebók, 7. kafla og 9. grein standa þessi orð:
„Jahve (Drottinn) Guð þinn er hinn sanni Guð, hinn
trúfasti Guð, er heldur sáttmálana og miskunnsemina
í þúsund æítliðu við þá, sem elska hann og varðveita
boðorð hans.“
Þúsund ættliðir, hvað er það langur tími?
Sé gert ráð fyrir, að hjá Israel, sem yfirleitt hafði
þann sið, að karlmenn kvæntust ungir, þá skulum við
hugsa okkur, að fimm ættliðir lcomi á hverri öld, ef
miðað er við tvítugsaldur, sem meðaltal, svo að tuttugu
ár liðu frá fæðingu föðurs til fæðingu fyrsta barns
hans. Þá koma fimmtíu ættliðir á þúsund árum, en
þúsund ættliðir á tuttugu þúsund árum.
Samkvæmt öðrum spádómum getur mannkynið ekki
átt fyrir höndum svo langa framtíð hér á jörðunni.
Hvernig verður fyrirheitið uppfyllt?
Samkvæmt spádómum ferst jörðin miklu fyrr en
þetta. Allir geta þó sofið rólegir. Hún ferst ekki í nótt
eða á morgun. Það eru meira en þúsund ár þangað til.
Spádómarnir segja, að Jesús Kristur komi aftur, setjist
að ríkjum sem einvaldur konungur í Jerúsalem og að
ríki hans standi í eitt þúsund ár.
Á síðustu áratugum hafa byrjað ferðalög út í geim-
inn umhverfis jörðina. Mönnuð geimslcip geta verið þar
vikum saman.
Sú spurning hefur því vaknað hjá mér: „Mun
Drottinn Jesús nota mjög fullkomnar geimferjur til
að geyma ísraels þjóðina, einhvern hluta hennar, í
þessum geimferjum, þegar jörðin ferst, en önnur ný
jörð verður sköpuð? i
Við minnumst þess, að hann notaði brauð og fiska,
sem voru fyrir hendi, til að metta fimm þúsundir
manna auk kvenna og barna. Getur ekki verið, að hann
noti geimferjur til að geyma fólk sitt í, sitt jarðneska
fólk, og til að flytja það til nýrrar jarðar undir nýjum