Alþýðublaðið - 24.12.1962, Blaðsíða 34

Alþýðublaðið - 24.12.1962, Blaðsíða 34
. EINU sinni bjuggu rík og velmetin hjón ’ á Vestfjörðum og voru þau lengi saman ; svo þau áttu ekkert barn þar til konan varð ólétt og fæddi meybarn frítt og fagurt. Það var nefnt Þórdís og ólst hún upp með foreldrum sínum og var hún gáíuð og myndarleg til munns og handa, en svo þrjózk að hún gjörði það helzt er aðrir vildu sízt. Barði þó faðir hennar Iiana óskaplega, en það vildi lítið duga. Líður svo þar til hún er átján vetra. 1 Var hún þá orðin afbragð annarra jafn- í aldra stúlkna að fríðleik, hannyrðum og gáfum. Þá var það aðfangadagskvöld fyrir ’ jól að fólk fór að búa sig til kirkju og átti ein vinnukona að vera lieima og hjá : henni Þórdís bóndadóttir (sem ætíð var Isölluð hin þrjózka fyrir óþægð sína), en ’ jbað var eins og fyrr að hún vildi það ekki er henni var sagt og sagðist ekki heima * verða, og lét faðir hennar það orðalaust af því hátíðin var. Verður vinnukonan , ein eftir heima, en Þórdís og hitt fólkið fór til kirkju og kom ekki heim fyrr en á * jóladagskvöld. En þá sést vinnukonan ekki og ógjört það er hún átti að gjöra, <fcn seint um kvöldið varð bónda gengið í ’ útiskcmmuloft er þar var: finnur hann ; Jpá vinnukonuna í rúmi sem var í loftinu og var henni ógnar illt, einkum fyrir hjartanu. Bóndi spyr hvurnig því sé var- ið að hún liggi þar. Hún segir: „Eg hélzt ekki við í bænum og flýði hingað og grúfsaði mig ofan í rúmið”, en ekki vildi hún segja við hvað hún hefði orðið vör. Batnar henni bráðum. Líður nú þar til annað aðfangadags- kvöld fyrir jól. Þa fer fólk að búast til kirkju, en bóndi segir það sé bezt að haga svo til að enginn þurfi að vera heima. Þórdís segir: „Eg skal nú vera heima“. Bóndi segir hún skuli fara, en þó verður Þórdís að ráða. Fer svo fólkið, en Þórdís flýtir sér að sópa bæinn og annað smávegis er hún hélt móður mundi vilja gjöra láta, og að því búnu fer hún upp á hápall í baðstofunni og sezt þar á rúm og fer að lesa í bók við kertaljós. En þegar nokkuð er komið fram á nótt heyrir hún gengið um bæinn frammi og þar næst koma inn tveir menn með vendi og skyggnast um'bæinn og segja: „Hér þarf ekkert að sópa, hér er allt hreint”, og fara svo ofan aftur. Síðan koma aðrir tveir með borðbúnað og alls slags vist og ölföng; setja þeir borð eftir endilangri baðstofunni og passa til sæti báðumegin við borðið og bera á það rétti er þeir koma með. Svo koma inn tíu kvenmenn og tíu karlmenn og setjast til beggja hliða við borðið. Þórdís hafði skugga á andlitinu á sér og Iézt alltaf horfa á bókina, en horfði þó nákvæmlega á allt sem fram fór. Þegar allt fólkið er setzt við borðið kemur inn ungur maður fríður og góð- mannlegur og leiðir með sér gamla konu. Hann gengur að hápallinum og heilsar upp á Þórdísi, en hún an.zar ekki og reigir sig aftur á bak, en hann fer frá henni og tekur í hönd konunnar gömlu og leiðir hana upp að borðsendanum og setjast þau þar. Er síðan tekið til snæðings og sá Þórdís að þar voru svo dýrir og marg- háttaðir réttir og vínföng að hún hafði slíkt aldrei séð. En þegar það er búið að sitja tímakorn stendur maðurinn ungi upp og tekur af öllu sem var á borðinu og fer með upp að hápallinum til Þór- dísar og segir: „Viltu smakka á þessu? Gerðu það fyrir mig.“ Þórdís hrærði ekki hendurnar og lézt ekki sjá það, en hann fór burt aftur með döpru bragði og settist niður. Þá segir kelling: „Þú þurftir ekki annað en halda liún Þórdís þrjózka mundi taka við þessu." Þrisvar fór hann til Þórdísar og bauð henni ým- islegt, en alténd fór á sömu leið og var hann daufari, þegar hann fór burtu en áður, og kelling sagði hið sama, en stundum: „Það var eftir lienni Þór-, dísi þrjózku að tarna." En þegar komið var undir dag, voru borð upp tekin og fólkið fór að þyrpast út, en konan og ungi maðurinn fóru seinast, og þegar hann gengur burt, fer hann upp að pall- inum og réttir að Þórdísi böggul æði stóran og segir: „Æ, taktu nú við þessu fyrir mig.“ Þórdís leit ekki við og hrærði ekki hendurnar, en hann gekk burtu og var mjög daufur, en kelling sagði: „Þú þarft ekki annað en halda hún Þór- dís þrjózka muni gjöra að orðum þín- um.“ Síðan leiðir hann kellinguna með sér út og allt verður hljótt. Um kvöldið kemur fólkið heim og spyr bóndi dóttur sína hvernig henni hafl liðið heima, en hún sagði: Ekki nema vel,“ og segir föður sínum frá öllu, er liún hafði heyrt og séð. „Þötti mér þa3 fara vel að, bæði það sem lék sér og eins við máltíðina,“ segir Þórdís. Bóndi varð reiður mjög við dóttur sína út af i því að hún skyldi ekki þiggja það, sem lienni var boðiö, „og verður það líklega til að leiða ógæfu yfir þig og okkur.“ Nú líður þetta ár til annarra jóla og býzt fólk til kirkju og segist Þórdís ætla að fara með. Bóndi segir hún skuli vera heima og hótar henni hörðu, ef hún þyggi ekki það, sem henni verði boðið, og fyrir ógnun föður síns, þorir ÞórdÍ3 ekki annað en vera heima. Fer fólkið, en Þórdís fer að öllu eins og áður og sezt upp á hápallinn. Kemur fólkið inn og er allt eins og áður. Ekki er vert að orðlengja það, að allt gekk til eins og fyrri jólin. Kom ungi maðurinn þrisvar til Þórdísar og bauð henni ýmislegt og seinast þegar það fór, kom hann með böggulinn og bauð Þórdísi, en hún þáðl ekkert, hvurki það né annað,- og lét sem hún sæi ekkert, en kelling hafði alténd sömu orð og fyrri jólin. Þar eftir fóru þaU burt og sýndist Þórdísi hann vera ógn- arlega dapur, þegar hann fór. En svo líður dagurinn til kvölds og kemur fólk heim. Spyr bóndi dóttur sína hvurnig henni hafi liðið, en hún segir allt sem var og verður bóndi hálfu reiðari en fyrra sinnið og jagar dóttur sína, segit að það sé líkast að hún taki gjöld fyrir þvermóðsku sína, því huldufólkið sé hefnigjarnt, ef því er móti gjört, — „og gott, ef ég og fólk þitt geldur þín ekki.‘* Líður nú til þriðju jóla og býzt fólk enn til kirkju og segir bóndi, að Þórdíg skuli nú fara með. „Onei,“ segir Þórdís, „ég fékk ekki að fara í fyrra, þegar ég vildi fara og skal ég nú heima vera.1* En þá tók faðir hennar hana og flengdl hana duglega og sagðist skyldi ganga næst hennar lífi, ef hún tæki ekki við því sem henni yrði boðið, og þorði Þór- dís ekki annað en lofa því. Síðan fet fólkið, en Þórdís fer að öllu eins og fyrE og allt gengur allaðeina til og hin jólia að fólkið kemur og ungi maðurinn býður Þórdísi af því sem með er farið og þigg- ur hún ekki, en fyrir daginn fer það að þyfpast út, en ungi maðurinn kemur upp að hápallinum með böggulinn og býður Þórdísi að taka við og eiga, en kelling stóð við og hvessti augun á Þórdísi og fannst henni sér einhvurn veginn hverfa hug- ur svo hún rétti hendina og tók við bögglinum, en talaði ekki orð. Fara þaU síðan burtu, en Þórdís sá, að glaðnaði yfir unga manninum, þegar hún tók við bögglinum. Fer hún nú að leysa hann upp og er þá innan í honum yfirmáta t fallegur kvenfatnaður og gullhálsfesti með gullnisti við er átti að hafa á brjóst- inu, einnig logagyllt silfurbelti. Líður svo þar til fólkið kemur heim og spyr bóndi dóttur sína hvurnig mS hafi farið. Hún segir allt eins og farið liafði og sýnir honum gripina og klæðn- aðinn og líkar nú bónda betur en áður« En næstu nýársnótt eftir hvurfu þau bæði Þórdís og faðir hennar og kom hann aftur á nýársdag, en hún aldréi, og eftir það hvurfu hjónin (foreldrar Þórdísar) hvurja nýársnótt, en ekki talaði bóndl um hvað af dóttur sinni mundi orðið, en eftir hann dauðan fannst skrifað, að hún væri hjá huldufólki er byggi f hólum er þar væri í landinu og gift þeim unga manni, er fyrr var um getið og værl hún þar í mestu metum af öllum, en gamla konan var móðir hatts. Lýkur svfl þessari sögu. (Islenzkar þjóðsögur og ‘ { ævintýri). | J* „Æ, taktu nú við þessu ^4 JÖLABÓK AU-ÝBUBLAÐSINS 1963
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.