Fylkir - 01.01.1927, Síða 2
4
hennar, hr. Gísli Guðmundsson — þó góður í sínu fagi sem gerla-
fræðingur —, var ekki vanur efnagreininga-rannsóknum.
Rannsóknir, gerðar á síðustu þremur árum, sýna, að jarðvegur
hér við Eyafjörðinn, geymir ekki yfir 10 % kalk, þar sem best gerir.
Er það aðeins Ve þess, sem sá leir þarf að geyma, sem nota skal til
sementsvinslu óblandaðan (sjá 10. og 11. bls. VIII. árg. »Fylkis«) ;
og rannsóknir gerðar árin 1923 og 1924 sýna, að jarðvegur hér í grend
við Akureyri (sjá 20.—21. bls. »Fylkis«, IX. árg.) geymir aðeins 1,9 %
til 2,3 % af kalki, sem er 2,7—3,1 % lægra en jarðvegur geymir yfir-
leitt erlendis (sbr. 19. bls. VIII. árg. »Fylkis«*). — Einungis hvítleiti
jökul-leirinn, nr. 19, inniheldur rúmlega 10 % Calcium-Oxyd (sjá bls.
21. IX. árg. »Fylkis«). Er sá leir því nýtilegur, jafnvel dýrmætur, til
að blanda saman við magran jarðveg. En mér er ókunnugt um, að
hann hafi ennþá verið til þess notaður, — eða að feiti leirinn frá
jörðunum Bjarg og Galmarstaðir, sem eg lét rannsaka árið 1922, og
sem einnig geymir um 10% Calcium-Oxyd, hafi verið notaður til þess
að bæta magran jarðveg.
Þetta sýnir markvert hugsunarleysi, eða frámunalega fákunnáttu. '
Eg hef fyrir satt, að í fyrra vor hafi nokkrir menn hér nyrðra, keypt
fyrir 11 þús. kr. útlendan áburð (saltpétur) fyrir nýræktar-svæði; en
grasvöxtur brást þar algerlega það ár og það fé fór þvi, svo gott sem,
til einskis. Hinsvegar fer húsdýra-áburður og mannasaur hér mjög
víða forgörðum, í sjávarþorpum, og eitrar eigi aðeins ferskt vatn,
heldur einnig sjóinn nærri landi, þar sem smáfiskur er. Getur það ef-
laust eitrað fiskinn, og valdið veikindum þeirra, sem neyta hans illa
soðins eða ósoðins; einnig hér á Akureyri, þrátt fyrir fjóra lækna,
eina eða tvær heilbrigðisnefndir, tvö hjúkrunarfélög og alt aukaliðið,
sem berst fyrir nýum berklahælum, nýum sóttvörnum og Rauða Kross-
inum að auk.
En veruleg hagnýting allra frjóefna, sem að öðrum kosti tapast:
söfnun þangs og þara í safngryfjur, og samtök til að vinna kalk úr
skeljum, bæði óbrent og brent, til jarðræktar, iðnaðar, húsabreinsunar
og sóttvarnar, það alt vantar enn algerlega hér á íslandi. Tjónið, sem
af þessu hlýtst, beinlínis og óbeinlínis, auk hins viðbjóðslega óþrifn-
aðar, einkum þar, sem gufandi pestarsýki eitra loptið á sumrum,
verður ekki metið til peninga. — Það er því ekki einungis til að efla
jarðrækt og koma upp vísi til iðnaðar, að efnarannsókna-stofa væri
gagnleg hér á Akureyri, heldur til að útvega bæarbúum óbrigðult og
ódýrt sóttvamarmeðal til að hreinsa burt og þurka upp allan óþverra,
— nl. brent kalk, — sem vinna má, eins og eg hef áður bent á, úr sjáv-
og 22. bls. Bruhns Petrographie úlg. 1906. 3,77% calcium svarar til
5%o x 3,77 = 5% af CaO.