Fylkir - 01.01.1927, Page 4

Fylkir - 01.01.1927, Page 4
6 Norðurlands, og ætti ekki að sjá eftir einum 50 til 100 þús. kr. til ábyg'gilegra rannsókna, eða svo sem Ve—Vs þeirrwr upphæðar, sem Akureyrar-búar fleygja út árlega fyrir bíó-sýningar, sjónleiki, sam- spil, dansa, tombólur, sprútt og tóbak og þesskonar góðgæti. Nýtileg rannsókna-stofa mundi kosta alls nálægt 60 þús. kr. hús og lóð meðtalin. — Eg vorkenni ekki Akureyrar-höfðingjunum og fína fólkinu hér að leggja fram einar 50 þús. kr., ef Alþingi, þ. e. þjóðin í heild sinni, veitir 10 þús. kr. til stofnunarinnar, nl. sem svarar þeirri upphæð, sem rannsókna-tæki til steina- og jarðtegunda-rann- sókna mundu ein kosta. Fari svo, að efnamenn Akureyrar og heldra fólk vilji ekki góðfús- lega leggja fram nægilegt fé til stofnunarinnar, þá gæti bæarsíjórnin ,samt, að líkindum með leyfi Alþingis, haft það upp, t. d. með því að ieggja svo sem 100% skatt á allar bíó-sýningar, samspil, dansa, Itombólur, aðflutt drykkjarföng og tóbak, sem selst til bæarbúa, svo og brjóstsykur og sælgæti, þar til hin nauðsynlega fjárupphæð væri fengin; eða þá með því að bjóða skuldabréf bæarsjóðs til kaups á ný, eins og hún gerði árið 1921 til að hafa upp fé til bæar-rafveitunn- « ar, til sællar minningar. En vilji bæarbúar hvorugt af þessu, né neitt verulegt fram leggja til stofnunarinnar, þá er ekki vert að neyða henni upp á bæinn, heldur lofa hverjum kaupstað eða sveitarfélagi í Norðlendinga-fjórðungi að eignast hana, sem leggur fram nægilega upphæð, — 50 þús. kr. minst — til viðunanlegrar byggingar. iTillaga mín send þinginu og samþykt hér á Akureyri síðasta Jan- úar á fundi, var þannig orðuð, af því fundurinn var Akureyrar- þingmálafundur, og af því eg vonaði að meira hluti bæarbúa, a. m. k. helstu efnamenn hans, væru því meðmæltir, að hún kæmist upp hér á Akureyri. En bregðist sú von, þá liggur beinast fyrir, að hver sá kaupstaður, eða hvert það sveitarfélag, eða skóli, sem leggur fram nauðsynlega fjárupphæð til þess að byggja sæmilegt hús og annast rekstur stofnunarinnar að mestu leyti, fái nefndan styrk til þess að koma henni upp hið bráðasta. Hve brýn nauðsyn er á slíkri stofnun er óþarfi að skýra frekar fyrir bændum og þeim, sem á sveitabúnað þekkja. Eins og framfarir landbúnaðarins útheimta betri jarðrækt, eins útheimtir jarðræktin miklu almennari og meiri þekking á undirbún- ingi jarðvegsins og alvarlegri tilraunir til þess að nota öll þau frjó- efni og áburðarefni, sem landið og sjórinn framleiðir. En þar eru steinafræðin og efnafræðin bóndans bestu kennarar. Að til þessara fræðigreina hefur svo lítið verið leitað, er fáfræði alþýðu og ónýtum skólum, meira en kaupmönnum eða »spekulöntum« að kenna, þó auð-

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.