Fylkir - 01.01.1927, Síða 5

Fylkir - 01.01.1927, Síða 5
7 vitað hugsi þeir meira um að selja vörur sínar en að fræða almenning eða leiðbeina honum í landbúnaði og jarðrækt. Hvað fjárstyrk til sjálfs mín snertir á þessu og komanda ári, þá vil eg endurtaka hér það, sem eg reit alþm. Bjarna Jónssyni frá Vogi fyrir 3 árum síðan, — nl., að það er alveg þýðingarlaust að ánafna mér lægri upphæð en 1200 kr. gulls á ári, sem styrk til steinarann- sókna og alveg gagnslaust að veita mér minna en 2400 kr. í árslaun og auk þess sem svarar 1600 kr. fyrir ferðakostnað, til þess að at- huga ýmsa staði, sem eg hef ekki getað skoðað féleysis vegna á síð- ustu 7 árum. Þingið (f járveitinganefnd Alþingis) lækkaði styrkinn úr 1200 kr. ofan í 800 kr. árið 1922, einmitt þegar eg hafði fundið veg til að bæta úr kalk-eklu íslands, með því að vinna kalk úr sjávar- skeljum, bæði til jarðræktar og iðnaðar; og það hefur ekki hækkað styrkinn síðan. Ei heldur hefur Atvinnumála-deildin þózt hafa heim- ild til að veita mér neina uppbót, til ferðakostnaðar, né einu sinni til að bæta mér upp, sem svrar þeim 400 — fjögur hundruð — kr., sem eg eyddi úr eigin vasa í ferðakostnað sumarið og haustið 1920, þegar eg skoðaði, ef til vill manna fyrstur, merkilega kaikæð upp af Þóris- hólma við Djúpafjörð (sbr. ferðalýsing mína í VI. árg. »Fylkis«). Eg lét bóndann á Brekku senda efnarannsóknarstofunni í Rvík um 12—15 kg. af því »silfurbergi«, þ. e. krystalliseruðu calcium-carbonati. Um haustið safnaði eg ýmsum tegundum af leir frá ýmsum stöðum hér norðanlands; sumar þeirra nýtilegar til múrsteinsgerðar og, ef til vill, til leirkerasmíðis. Upphæðin 2400 kr. í árslaun, er aðeins það, sem hver dugleg síma- mær fær í laun, nl. 200 kr. á mánuði fyrir að sitja og masa, segjum 8 klst. á dag; en 4000 kr. á ári er álíka laun, eins og hverjum meðal- símaritara er goldið.—Það borgar sig illa að vinna að útbreiðslu verk- legra og gagnlegra vísinda hér á Islandi, ef styrkurinn til mín er réttur mælikvarði; og mér, sem reynt hef að ryðja brautir til al- mennrar rafmagns-notkunar, jafnt í bygð sem bæum, og til innlendr- ar kalk-brenslu og sements-vinslu og betri jarðræktar, skal launað með einum 800 eða 900 kr. á ári fyrir starf, sem helztu fræðimenn á Islandi hafa ekki enn treyst sér til eða nennt að vinna. Það er þýðing- arlaust að ánafna mér þá smánar-upphæð framar; — eg mun hvorki þekkjast ölmusur né opinbera háðung. Erindi mitt um rafmagnshitun hefur þegar reynst rétt og mun reynast rétt. Orka Islands getur, ef réttilega notuð, gefið af sér 60—75 kr. virði (sem hitá, ljós og iðjuafl) á hvern landsbúa á ári, þ. e. 6 til 'IVs mill. kr. nú, árlega, ef alment notuð til herbergja-hitunar jafnt sem til annars, og getur nægt landsbúum, þó þeir verði þrjár millíónir talsins; og kostnaðurinn þarf ekki að verða ókleyfur, e/ ráðvandir og L
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.