Fylkir - 01.01.1927, Page 10

Fylkir - 01.01.1927, Page 10
12 Sandtegundir. — Sýnishornin af sandi, send rannsóknastof- unni á þessum árum, eru 7 talsins; eitt þeirra, nr. 112, utan úr fljót- um, er nýtilegt sem steypisandur. Móhellu-tegundir. — Aðeins ein þeirra hefur verið efna- greind, nl. nr. 106. Gefur hún 20% jám-oxyd, og 13% aluminium- oxyd, (sjá VIII. árg. »Fylkis«, bls. 10). Gosaska. — Þar af eru 3 sýnishorn; aðeins 1 efnagreint, nl. 120 (sjá IX. árg. »Fylkis«, 20. og 21. bls.). Inniheldur það rúmlega 4% calcium-oxyd; mun henta til að bæta mjög leirkendan jarðveg. Hrauntegundir. — Alls hef eg sent rannsóknastofunni, 31 sýnishorn af hrauntegundum, sem allar eru meir og minna nýtilegar til stein-smíðis, vegagerðar og jarðvegsbóta. Má þar af nefna: blá- grýti (basalt), stuðlaberg (columnar basalt), grágrýti (dólerít), hraungrýti (lava) ýmsar tegundir, svo sem: tinnuhraun (líparít), hraunstein og móberg (trachyt), þursaberg (palagónit), baulustein (Baulit) o. fl. Byrðustein (tuff) og vikurkol; sá fymefndi er ágætur byggingasteinn, en vikurkol (þ. Bimstein, e. pumice) malað og blandað nýslöktu kalki, gerir, eins og foksandur og gosaska, stein t nýtilegan í skilrúmsveggi og skorsteina. — Sandur, blandaður ný- slöktu kalki, 7 til 9 : 1, er, eins og menn vita, nýtilegur til »mortars«, í skólprör o. fl. Markvert að þessi efni eru ekki meira notuð en orðið er. Það gæti minkað innflutninginn á sementi og trjávið frá útlönd- um. En kalksteins-smíði verður líklega að bíða, þar til kalk-ofnar komast upp. Eitt sýnishorn af blágrýti sendi eg héðan til efnagreiningar sl. haust, en veit ekki enn um árangurinn. Gosaska. Hinar ýmsu gosöskutegundir hafa ekki verið nógu vel rannsakaðar, það eg veit, enn sem komið er; ei heldur hafa leir-teg-’ undirnar frá Þeystareykjum og frá Mývatni verið enn, það eg veit, efnagreindar. Önnur þeirra er rauðleit, hin blágræn. Sú fyrnefnda mun nýtileg til leirkeragerðar. Brennisteinninn frá Þeystareykjum, og eins frá Reykjahlíð, getur eflaust orðið mikils virði, sé hann unninn og hreinsaður. Sumstaðar er hann alveg hreinn, eins og hreinsaður væri. Nýar kolategundir hef eg ekki fundið; en athugað hef eg surtar- brandslög hér upp á Glerárdal, og eins í lllugastaðafjalli í Fnjóskár- dal. * * * Þegar eg sá, að engar steinategundir eða jarðtegundir, sem eg hef fundið hér norðanlands eða vestan, geymdu málma né málmblendinga, svp vinnandi væru eingöngu, lagði eg meira kapp á að finna kalk til

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.