Fylkir - 01.01.1927, Page 13

Fylkir - 01.01.1927, Page 13
15 bíó-sýningar, samspil, sjónleiki og dansa og skáktöbl afnumin, og svallinu og ómenskunni útrýmt. Óaldar straumarnir liggja enn að landi og halda þjóðfélaginu hneptu og innilokuðu, ver en nokkur hafís; og óvættirnar, sem með þeim straumum flytjast, setja heimskuna og fordildina í hásæti, en fleygja viti og ráðvendni fyrir borð. Þar af koma peningavandræði Islands. Þess vegna eru rikishyrslurnar tómar, og ekkert fé til þa/rfra fyrirtækja, ekki svo sem 2—3 millíonir til að koma upp sements vinslu á Vestfjörðum eða Suðumesjum eða annarsstaðar; ekki einu sinni 4 þúsundir kr. til að byggja lítinn skeljakalk-brensluofn, né svo mikið sem 1600 kr. til að rannsaka skeljabirgðir landsins ögn betur, og vita nákvæmlega, hve mikil skeljatekjan yrði árlega til jafnaðar, ef se- mients-verksmiðja væri reist og tilraun gerð til að vinna sement úr innlendum efnum og síðan að búa til byggingarstein, úr sandi, möluðu hrauni og kalki, unnu úr kúskeljum, sem víða finnast feiknin af kringum lsland. Skoðun minni í VII. og VIII. árg. »Fylkis«, að mögulegt sé að vinna sement úr kúskeljum og góðum leir, hefnr enn verið lltill gaumur gefinn og ekkert fé fram lagt til fullkomnari rannsóknar; enginn skattur verið lagður A óþarfar og skaðlegar nautnir og skemtanir, til að koma upp sementsverksmiðju, hvað þá til að reisa raforkuver til að vinna áburð úr loplinu og auka jarðræktina, bæði i kauptúnum og sveitum. Til þess finnur alþingi ekkert ráð. Til þess má skemtana skatturinn — nýlega leiddur í lög — ekki ganga, heldur til að koma upp þjóðarleikhúsi! í Reykjavík! Það er eitt af nýustu úrræðunum til að efla þjóðþrif íslands og menning! Eftirfylgjandi tabla talar fyrir sig sjálf. Af henni má sjá, hvaða tegundum eg hef safnað og sent efnarannsóknastofu Islands til nán- ari athugunar. Alls eru það 130 sýnishorn, sem eg hef safnað, nú þegar þetta er ritað, og sent til efnarannsókna stofunnar, þar of 10 sl. nóvember. Eru þar taldir 8 flokkar og' undirflokkar, eða tegundir eins og tablan sýnir, nfl., 8 sýnishorn af kalksteini; 1 af kúfskeljum; Jf8 sýnishom af leir; 2 af leirsteinum; 7 sandtegundir; 6 sýnishorn af sandsteini; 11 af móhellu; 3 af gosösku; h af byrðusteini (Tuff); 2 af baulusteini (Baulít); 5 af blágrítis-tegundum (basalti); l'af grágríti (dólerit); 2 tinnutegundir; 17 óflokkað hraungrýti; í málmblendíngar (mineralia); 4 brennisteins-sýnishorn, — eitt þeirra hreinn brenni- steinn; 1 surtarbrandstegund; 2 jarðvegs-sýnishom; og 1 móöskusýnis- hom. Síðastliðið sumar gat eg ekki tekist neinar ferðir á hendur kring um land, til þess að athuga skelja-birgðir þess og leir; t. d. á Suðurnesj- um, nfl. á Garðskaga, né heldur áVestfjörðum. — Eru nr. 121, 128,

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.