Fylkir - 01.01.1927, Síða 14
16
129 og 130 tekin hér í grendiimi, en nr. 122 til 127 eru frá jörðinni
Bær i Sléttuhlíð, nálægt Höfðavatni. — Segja kunnugir mér, að grjót-
ið í Sléttuhlíð sé mjög svipað grjótinu í Málmey; en þangað gat eg
ekki farið af ofangreindum ástæðum. Má vera að þar finnist bergteg-
undir mjög ríkar af jámi; en eg hef ekki séð neinar, sem bera veru-
legan málmblæ, eða hafa þá efnisþyngd, að vinnandi sé úr þeim. —
Járnríkasta grjótið, sem eg hef séð, er frá Vestfjörðum, og meðfram
stórfljótum Norður-lands. En ekki hygg eg að járnvinsla borgi sig
hér á fslandi, né heldur aluminium-vinsla, nálægt því eins vel og jarð-
ræktin. En til þess að jarðræktin borgi sig betur en hingað til, verða
landsmenn að fara betur með áburð þann, sem til er, og læra að búa til
áburð úr innlendum efnum: beinum, skeljum, torfi, o. s. frv.
En til þess þarf verksmiðjur og lærða starfsmenn og auðvitað rann-
sókna-stofur, til að leiðbeina alþýðu og uppvaxandi kynslóð.
Síðastliðið sumar (1924) varð eg að láta mér nægja að safna nokkr-
um steinategundum hér í grendinni og senda þær, ásamt fáeinum öðr-
um sýnishornum til efnarannsókna-stofunnar, til nánari rannsóknar.(
Sýnishorn þau, er eg sendi Efnarannsókna-stofu Islands, 29. nóv. síð-
astl., voru þessi:
1. 200 grm. mjallhvítur leir, gos-öskublandinn, tekinn hér í
2. grendinni; s.h. merkt Dökkur, nærri svartur steinn, Basalttegund, h.6, rák hvít Nr. 121 122
3. Rauður steinn (Tuff), h.5, rák bleikrauð; 6.h. merkt . . . — 123
4. Dökkgrár hraun-steinn (rhyolit), h.6, rák hvít s.h. merkt — 124
5. Ljósgrár — h.6 - — — 125
6. Móleitur — h.5 - — — — 126
7. Öskugrár — h.6 — — — — 127
8. Blágrýtis-moli 100 grm., e.þ. 2,9, h.6 — — — — 128
9. Músgrár hraun-steinn h.6 — — — — 129
10. Grænleitur hraun-steinn h.6 — — - — 130
Af þessum sýnishornum óska eg helzt að fá efnagreind þau sem
hér segir:
Hvíta leirinn nr. 121; svarta steininn nr. 122; móleita steininn nr.
126; blágrýtismolann nr. 128; og græna hraunsteininn nr. 130
Þ. e. 5 efnagreiningar alls, auk þeirra 2ja, sem eg fékk með bréfi hr.
Tr. Ólafssyni, ds. 30. jan. sl
Akureyri, 23. marz 1925.
F. B. Arngrimsson•
Sjá töblur á 20,—22. bls. hér á eftir.