Fylkir - 01.01.1927, Side 22

Fylkir - 01.01.1927, Side 22
24 og alþýðumentunar, þ. á. m. búnaðarskóla og »gagnfræðaskóla« svo- nefndra og lýðskóla, og launar, þess að auk, starfsmenn og embættis- menn til að auka jarðrækt hvarvetna, svo sem Búnaðarfélag fslands og Ræktunarfélag Norðurlands eiga að gera. Ekki einn einasti þeirra embættismanna, nema hr. S. Sigurðsson fv. búnaðarmála-stjóri hefur, það eg veit, talið rannsóknir mínar á áburðarefnum mikils virði, eða eftirtektarverðar; ei heldur neinn hinna lærðu búfræðinga, þó eg hafi gengizt fyrir því síðustu 5 ár, að hér væri safnað kúskeljum við Eya- fjörð og skeljamél notað til að bæta magran jarðveg. Einn þeirra, hefur talið það óþarft hér á Akureyri í sáðgarða, jafnvel þó reynslati hafi borið mér vitni, og fordxmi Dana, að nota kalk til að auka gras- rækt og fóðurgæði í sínu landi, sem er þó ein kalkhella undir leir, en ekki hraunhella eins og fsland, ætti að vera næg leiðbeining fyrir bú- fræðinga, sem kunna Dönsku og hafa lært í Danmörku. Sjá einnig rit- gerð hr. Sig. Ein. Hlíðar birta árið 1925 í ársriti Ræktunarfélags Norðurlands. — Ágirndin er sem fyr orsök margra meina, og fáfræðin og sérplægnin eru hennar þekku þjónustumeyar. Væri það kalk, sem hægt er að vinna úr skeljum við strendur íslands, árlega hirt og not- að, ásamt því kalíum og calcium-phosphati, sem árlega má fá úr þangi og þara, fiskúrgangi og smásíld, þá mætti án mikils kostnaðar auka grasræktina um helming. Steina og jarðtegunda^söfnun og rannsóknir gerðar árið 1925. Hinar daufu, ekki að segja sinnulausu, undirtektir Alþingis, vorið 1925, þegar B. St. bar fram breytingartllögu sína, um 400 kr. hækkun styrksins til mín til steina- og jarðtegunda rannsókna, sýndu hve mikils, eða hitt þó heldur, leiðandi menn í fjárveitinganefnd Alþingis möttu verk það, er eg hafði leyst af hendi síðan 1918. Auk þess gaf ofangreind tilkynning hr. T. Ólafssonar (að hann gæti ekki framvegis efnagreint jarðvegstegundir fyrir mig, án sérstakrar borgunar, sökum tímaleysis og fjárhagslegra ástæðna), mér fullkomna bending um það, að eg mætti ekki mikils vænta þaðan, þrátt fyrir dugnað hans og velvild; því sjálfur hafði eg ekkert aflögu. Varð eg því að halda kyrru fyrir, um sumarið, og safnaði aðeins tveimur nýum tegundum; en þær voru: Kalksteinstegund (Stalagmit) úr helli nokkrum í landi bæarins, Ein- hamar, í Hörgárdal; sýnish. merkt nr. 131. Kóralla-sandur tekinn hér út á Eyafirði; sýnish. merkt nr. 132. Fyrra sýnish. er mjög fallegt og prýðir hvert steinasafn. Hið síðar-

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.