Fylkir - 01.01.1927, Qupperneq 23
25
nefnda er markvert, sökum uppruna síns og er nýtilegt til að bæta
magran og leirkendan jarðveg.
Nokkrum tíma varði eg, það sumar, til að útvega hjá viðurkendum
þýzkum verkfræðingi, hr. Richard Alberts, lýsing og kostnaðaráætlun
af kalkofni, hentum til að brenna kalk úr sjávarskeljum; einnig
tvær teikningar af mismunandi stærð ofnsins, ásamt leiðbeiningum
um notkun ofnsins og kalkbrenslu.
Fyrir þá lýsing, kostnaðaráætlun og nýnefndar teikningar greiddi
eg það sumar (20. Júlí) fimtíu br. danskar. Minni ofninn er 7 metrar
á hæð, getur brennt 3—4 smálestir af hreinum, þurrum skeljum í
senn, og kostaði fullger á Þýzkalandi, það sama sumar, 3800 mörk
gulls. Stærri ofninn er 9 m. á hæð, brennir 4—5 smál. af hreinum
þurrum skeljum í senn, og kostaði það sama sumar, fullger á Þýzka-
landi, 4300 mörk gulls (1 mark = tæpl. 1 kr. gulls). — Sbr. ofan-
greinda lýsingu hr. E. Alberts. — Samskonar ofnar, segir nefndur
arkitekt, eru víða notaðir á Norður-Þýzkalandi og gefast vel. Féleysis
vegna, gat eg ekki þá greitt alla upphæðina, sem nýnefnd skjöl og
og teikningar kostuðu, og hvorki byggingameistarar, efnamenn, né
vísinda frömuðir, eða fræðilið Akureyrar kom mér þá til hjálpar. En
Kaupfélag Eyfirðinga hafði þá um vorið greitt mér 100 kr., sem
þóknun fyrir ræðustúf, sem eg flutti hér í bænum í áheyrn fulltrúa
þess, um þörfina á betri búskap, betri jarðrækt og betri hirðing á öll-
um frjóefnum, þ. á. m. kúskeljum, fiskúrgangi, beinum, móösku o. s.
frv. Með þeim peningum greiddi eg 50 (fimtíu) kr. danskar, nl. einn
þriðja þeirrar upphæðar, sem hr. Alberts setti upp, fyrir ofangreinda
lýsing og teikningar. — Meira gat eg ekki gert það sumar, að því, er
snertir steinasöfnun og rannsóknir. Seint um sumarið bað eg hr. Jón
Þorláksson, þá fjármálaráðherra íslands, um 400 kr. uppbót, svo eg
gæti ferðast og athugað skeljabrgðir á ýmsum stöðum, einkum sunnan
lands, og vestan. Bréf mitt til hr. J. Þ. var sent héðan með áb. pósti
:22. September; en árangurslaust. Þrjár vikur liðu svo, að eg fékk
ekkert svar, og þegar svo eg, í síma, spurði nefndan ráðherra, hvort
hann hefði fengið bréf mitt, játti hann því, en kvaðst ekki geta
veitt mér nefnda uppbót.
í Nóvembermánuði, sama ár, gaf eg út bæklinginn Mesta fram-
fara-málið, sem svarar ósönnum og ærumeiðandi sakargiftum,
snertandi framkomu mína og opinber skrif, um eitt hið mesta vel-
ferðarmál Akureyrarkaupstaðar og nálægra sveita. Er mér brixlað
um að hafa farið með »ósannindaþvætting« og »blekkingar, til að villa
almenningi sjónir«, hindra þa/rft fyrirtseki, og reyna að »skaða álit
bæarins út í frá«. En þá, sem með ósannindum o. s. frv. ætti að svelta