Fylkir - 01.01.1927, Qupperneq 28
30
Yfirlit yfir starf mitt á þessu ári hef eg þegar sent atvinnumála-
skrifstofu landsins fyrir þetta ár og síðastliðið ár.
Heildaryfirlit yfir steinasöfnun mína og rannsóknir, gerðar á árun-
um 1925 og 1926, er gefið í töblu nr. II. hér að framan.
Lýk eg svo þessum líunm með þeirri ósk, að Eyfirðingar og Norð-
lendingar yfirleitt, láti ekki fleiri ár líða svo, að ekki sé komið upp vísi
til viðunanlegrar steinarannsókna-stofu hér norðanlands, til að rann-
saka efni og auðlegð landsins sjálfs, auka jarðræktina, bæta hýbýli al-
mennings og koma upp nytsömum og arðberandi iðnaði í almennings
þarfir. — Með góðri ræktun getur landið framfært tvítug til þrítugfalt
fleira fólk en nú byggir Island. Séu hýbýlin hlý, rúmgóð og bygð úr
al-innlendum efnum, þá hverfa hinar ógurlegu drepsóttir', »berklaveik-
indin«, sem um aldir hafa eytt blóma þjóðarinnsir. Og sé landbúnaður-
inn rekinn með forsjá, geta landsmenn sjálfir af eigin ramleik rekið
arðberandi iðnað og framfleitt úr skauti landsins efni í þau skip og
þær vinnuvélar, sem þeir helzt þarfnast. Jarðræktin er auðugasta og
tryggasta gullnáma landsins og góð húsakynni bezta vörn gegn veik-
indum. Island á bæði járn og aluminium í berg'tegundum og leirtegund-
um sínum, og málm-iðnaður getur þrifist hér, þegar vatnsorka lands-
ins er notuð jafnframt og alment, eigi aðeins til Ijósa og suðu, heldur
til herbergjahitunar og til að vinna áburð eða frjóefni til jarðræktar,
sem hér á landi má gera alveg eins ódýrt eins og í Noregi með vatns-
orku-rafmagni og talsvert áhættu og hættuminna en með nokkurri ann-
ari enn uppfundinni aðferð.
Vatnsorka fslands gildir landsmönnum, þegar fullnotuð, á við kola-
námur og steinolíulindir, sem gefa að minsta kosti fult 300 milj. kr.
virði á hverju ári, reiknað með sama verði og fyrir stríðið og um leið
60 miljón kr. arð á ári. En til þess að nota þær orkulindir, verða lands-
menn fyrst að læra að nota berg- og jarðtegundir landsins, til bygg-
inga, vinna sement úr leir og kalki því, sem hér er að finna, meir með
ströndum landsins en í því sjálfu, búa til byggingarstein úr sandi og
kalki, eða jafnvel úr leir, eins og jörðin sjálf hefur gert og sýnt mönn-
um, hvernig á að gera. Um þetta geta Íslendingar mikið lært af frænd-
þjóðum sínum og er vonandi að menn geri það sem fyrst. Það borgar
sig betur en að kaupa efni og hvað annað frá útlöndum, þó kostnaður-
inn verði fyrst um sinn 20 miljónir króna á ári, álíka upphæð og farið
hefur til óþarfa árlega hér á landi á síðustu 7—8 árum.
Akureyri 18. des. 1926.
Fr. B. Arngrímsson.