Fylkir - 01.01.1927, Qupperneq 29
Athugasemdir og skýringar.
Ofanrituð tabla sýnir, í einu vetfangi, hvaða steina- og jarðtegund-
um eg hef safnað á síðustu níu árum, og hve mörg sýnishorn eg hef
tekið alls, einnig hve mörg sýnishorn eg hef sent efnarannsókna-stofu
íslands í Reykjavík til nánari prófunar, og hve mörg þeirra hafa verið
þar efnagreind og hvenær.
Flokkun tegundanna og niðurröðun flokkanna er hin sama, sem birt-
ist á 1.—19. bls. IV. árg. Fylkis, árið 1919, nema hvað móberg er hér
talið sérstakur flokkur.
Er þessi flokkun gerð, sem einföldust, til þess að hver, sem les, geti
um leið séð og skilið, hvaða tegund hér ræðir um, og til þess að leiða
athygli að þeim tegundum, sem helzt og almennast geta að gagni
komið.
Tilgangurinn er hér ekki sá, að gefa vísindalega sundurliðað yfir-
lit yfir steinaríki Islands, heldur sá, að vekja athygli almennings,
jafnt, og leiðandi manna, á hinum ýmsu steintegundum þess, einkum
hinum algengustu, og um leið vísa veg til að nota þær talsvert betur
en gert hefur verið á liðnum öldum, til steinsmíðix, jarðræktar og
iðnaðar.
Þörfin á meiri verklegum frwmkvæmdum í þessa átt, er hverjum
hugsandi manni augljós. Landið er sjálft, svo að segja, bygt af blá-
g’rýtis og hraungrýtis lögum, hulið veðruðu og meir og minna vikur-
blönduðu bergi, hið efra, svo nefndu móbergi; en híbýli almennings
eru ekki úr steini, heldur úr torfi eða timbri og yfirleitt þröng og' köld.
Hraungrýtið og vikrið, er viðurkennt erlendis, að geymi mörg' hin
dýrmætustu frjóefni, svo sem alkali jarðtegundirnar, phosphöt og
brennistein, oft í ríkum mæli, og er því ágætt til jarðræktar, þegar
jarðyrkjumaðurinn hefur mulið það sundur og blandað það mold og
áburði. En hér á landi ei*u enn þá engar verksmiðjur, til þess reistar,
að vinna úr þeim tegundum. Blágrýtislögin og jafnvel móhellan og
leirinn geyma hvarvetna hér á landi talsvert járn og aluminium, eins
og efnagreiningarnar í framanritaðri skýrslu sýna; en alt til þessa
hefur engin verksmiðja verið reist hér á landi, til að vinna þá málma,
þó aðfluttir málmar hafi kostað landsmenn alt að 2 millionum króna