Fylkir - 01.01.1927, Side 30
32
á ári, nú um nokkurra ára skeið, og ísland vanti ekki orku til að bræða
málma eða málmsteina.
Hin tilfinnanlega og almenna vöntun, á góðum húsalcynnum, góðri
jarðrækt og nytsömum iðnaði, — þó sá iðnaður væri, fyrst um sinn,
ekki annar en sá, að smíða eða búa til jarðyrkjuáhöld, svo sem plóga
og herfi, helztu veiðarfæri og húsgögn, einkum suðu og eldavélar úr
innlendum málmi, bræddum úr bergtegundum eða unnum úr leirteg-
undum Islands, — þessi alsherjar skortur á nauðsynlegustu þægind-
um; góðum híbýlum, nægum birgðum í öllum árum, hentum vinnu á-
höldum og, ekki hvað minst, á nægum hita á heimilum fólks á vetrum,
en sífeld sambúð við kulda, ryk og reyk, og þar af leiðandi eiturlopt og
veikindi, sem á þessari öld, eins og á liðnum öldum, hefur borið burt
hundruð, já þúsundir vænlegustu ungmenna og útbreitt ólæknandi
veiklun og sjúkdóma. — Alt þetta, voru fyrstu og fremstu orsakirnar
til þess, að eg tókst í fang að athuga steinaríki Islands eftir því, sem
kringumstæðumar leyfðu, og að eg bað um styrk af opinberu fé til
þess, fyrir rúmlega níu árum síðan. — Eg bað um 3000 kr. á því fjár-
hagsári, þ. e. 1500 kr. á ári, meira vildi eg ekki biðja þingið um, því
þá var styrjöld erlendis, en hér á landi höfðu menn horfið frá, hinu
eldra og ólíkt tryggara búskaparlagi, og byrjað á gífurlegri sjávar-
útgerð, sem tæmdi sveitirnar að fólki, hafði ógurleg vörukaup í för
með sér og setti landið um leið, í sökkvandi og botnlausar skuldir, sem
það býr að enn. Mér voru veittar aðeins 1200 kr. alls, þ. e. 600 kr. á
ári, til að lifa af og vinna visindaverk, sem fæstir hinna lærðu manna
íslands eru færir um, eða kæra sig um að vinna. Eg hef síðan fengið
lítið eitt hærri upphæðir, eins og framanrituð greinargerð sýnir, alls
8000 kr. á 9 árum, eða til jafnaðar um 900 kr. á ári. Með þeim styrk,
hef eg int af hendi það, sem ofanrituð skýrsla sýnir.
Að árangurinn ekki er orðinn meiri, á níu árum, en orðið er, munu
þeir einir furða sig á, sem ekki vita, hvað steina-fræði er, og hvað sú
steinarannsókn útheimtir, sem verða skal almenningi til gagns. Að
svo lítill áhugi hefur verið sýndur á steinarannsóknum og á stofnun
viðunanlegrar efnarannsókna-stofu hér norðanlands (ekki sem keppi-
nauts við efnarannsókna-stofuna í Reykjavík, heldur sem óháðrar vís-
indastofnunar, hinni til hjálpar og aðstoðar), sannar betur en orð
geta, hve litla þekking landsmenn hafa enn þá á landi sínu, og hve
lítið traust þeir bera til uppgötvana reynslu-vísindanna á síðustu
tveim öldum, ef ekki á sínum eigin tekniskt lærðu mönnum.
Þessi orð, eru ekki rituð til að móðga neinn sérstaklega, eða vegna
þess, að þingið hefur ekki virt verk. mitt, um síðustu 3 ár, meir en 800
kr. á ári, krónan í afarlágu verði, og hefur tvívegis neitað að leggja
frarn lítilfjörlega upphæð, eitt sinn til skeljakalkbrenslu tilrauna, hitt