Fylkir - 01.01.1927, Side 36
88
á 10. bls. VIII. árg. Fylkis, einnig Firmans, F. L. Smidth & Co.,
K.höfn, 7. bls. sama). 1 sumum tilfellum er skeljakalk tekið fram
yfir steinakalk og þess jafningi til steinsmí&is og jarðræktar. Skelja-
kalk sameinast vatni með sömu áfergju og steinakalk og gefur með
sandi gott múrlím. Blandaðar hreinum þurrum leir, í hlutfallinu 3 :1
að vigt, gefa hreinar, þurrar skeljar, sé sú blanda brend í hverfi-ofn-
um og síðan möluð í duft, ágætt Cement.
Hve mikið af kúskeljum má plægja upp árlega kringum Island og
hve mikið af kúskeljum og kalkríkum skeljum berst á land árlega
með brimi? Hvorugt þetta hefur verið nægilega rannsakað; ei heldur
hve mikið af kúskeljum liggur nú inni í fjarðarbotnum, brotið og
sandi orpið. En svo mikið er víst, að á Vestfjörðum, Garðskaga og
við ýmsa fjarðarbotna á Suðurlandi er fjörusandurinn víða hvítur
eða gráhvítur af brotnum og óbrotnum skeljum, að miklu leyti kú-
skeljum.
Hvað skeljaplæging snertir, þá er það einnig víst, að talsvert af
kúskel er árlega plægt upp vegna skelfiskjar til beitu; en skeljamar
sjálfar eru sjaldan hirtar, heldur er þeim fleygt í flæðarmálið og
látnar sogast út aftur í næsta brimgarði.
Sumarið 1921 fór eg út á Árskógsströnd hér við Eyafjörð til að
sjá skeljahaugana þar og leita upplýsinga um árlega skeljaplæging
þar ytra. Sögðu gamlir og trúverðir menn mér þar, að þegar vel gæfi,
fengi feræringar um 2500 (tvö þúsund fimm hundruð) samlokur kú-
skelja hver til jafnaðar á dag (sbr. 49. bls. VII. árg. Fylkis, útg,1,
árið 1922). — Eftir því að dæma, ættu fjórir feræringar að plægja
upp tíu þúsund samlokur á dag; en úr þeim fæst við brenslu tonn,
þ. e. 5 tunnur kalks, sem er 100 króna virði, tunnan á 20 kr. A tíu
dögum plægja sömu 4 feræringar upp tífalt meira, sem getur við
brenslu gefið 5 tonn, þ. e. 50 tunnur kalks, og á 12 dögum, þ. e. 2 vik-
um, plægja sömu 4 feræringar upp nóg til að vinna úr 6 smálestir
af kalki. En sex smálestir kalks, á 20 kr. tunnan, er 1200 kr. virði, og
nægir til múrlíms í meðal íbúðarhús, handa 8 manns, sé það bygt úr
múrsteini, eða höggnum grásteini eða Byrðusteini. Á 48 dögum, eða
8 vikum ætti einn feræringur að plægja upp nóg til að vinna úr kalk
eins og þarf í hús handa 8 manns, ef bygt úr múrsteini.
Hve mikið Cement mögulegt er að brenna hér á landi, notandi kú-
skeljar og frændur þeirra, kuðunga, mest megnis sem kalkefni, verður
ei heldur sagt með vissu, þar til skelja-mið íslands og birgðir þess
af skeljum eru langtum betur rannsakaðar en orðið er. En gætandi
þess, að inn af hverjum firði á Vestfjörðum eru fjöru-sandarnir
gráhvítir af skeljum, að miklu leyti kúskeljum, en á Garðskaga er
skeljabreiða margra metra breið og nokkra kílóm. á lengd, og inn af