Fylkir - 01.01.1927, Page 37
39
Hvalfirfti og fmsum öðrum fjSrÖum eru rastir af skeljum, — J>á er
ekki ólíklegt að á þeirri strandlengju, 1000 til 1200 km. á lengd, megi
árlega hafa upp svo gefi 6000 til 12000 smálestir hreinna, þurkaðra
skelja um næstu ár, það er nóg til að framleiða 5000 til 10000 smá-
lestir = 30000 til 60000 tunnur Cements. En það Cement nægir til
steypu í 500 til 1000 íbúðarhús, handa 8 til 10 manns hvert, og er
450000 til 900000 kr. virði, Cement á 15 kr. tunnan.
Sé mögulegt að hafa upp svo mikið af skeljum árlega, sem hér er
sagt, þá ætti Cements verksmiðja að geta borið sig hér á Islandi,
þó hún kosti uppkomin 3 milliónir kr., ef rentur og afborganir eru
7% og reksturs kostnaður er 120 til 140 þúsund krónur á ári.
Væri ekki ómaksins vert að láta skoða skelja-birgðir fslands ögn
nánar, og um leið rannsaka helztu skeljamiðin, til að sjá, hversu bezt
má nota þau og vernda; einnig tryggja landsmönnum innlent efni í
hlý og varanleg hús og þjóðféleginu aðal-umráð yfir þessum kaik-
námum landsins. Kalkvinsla í smáum stýl getur borgað sig, þar sem
nóg er til af skeljum, og kalkið getur dugað til kalksteins-smíðis og
til jarðræktar að auk. — Ágæt ritgerð um kalkbrenslu og skeljakalk-
ofna er birt í Lærdóms Lista félagsritunum, IX. bd., útg. 1788.
II. fl. Leir og leirsteinar (Clays).
Eins og þegar er sagt, er kalk svo bezt til byggingar, að það sé
notað í múrlím, eða blandað leir og brent til cements. Þessvegna gerði
eg mér talsvert far um að skoða þær leir-tcgundir, sem nýtilegar væru
til múrsteins-brenslu og til cements-vinslu, því næst þær, sem dygðu
til leirkerasmíðis. Að eg treysti mér til þessa starfs, var meðfram af
því, að eg hafði vestan hafs fengið ofurlitla æfingu í að þekkja leir-
tegundir, slíkar sem þar eru notaðar til múrsteins-brenslu og til leir-
kerasmíðis. Hafði unnið part úr sumri í múrsteins-verksmiðju þeirra
Sayre & Fisher í Sayreville, N. J., árið 1891, og unnið þar að leir-
blöndun. Hafði einnig verið heilt ár (1879) heimilismaður á stórbýli,
sem rak múrsteinsbrenslu og leirkerasmíði, nálægt bænum Beaverton,
í Ontario, Canada. Þekkti því leir frá aur og mold! og vissi að grófur
leir, eða mjög sendinn smiðjumór, dugar ekki til múrsteins, nema
hann sé hreinsaður og eltur, áður hann er brendur, og að til leirkera
þarf enn fínni leir.
Eins og skýrslan sýnir, og sjá má í ritinu Fylkir, eru sýnishomin
af leir-tegundum langflest allra teg., sem eg hefi safnað, og það
,v(egna þess, að leir er nauðsynlegastur allra jarðtegunda til jarð-
ræktar og að brendur einsamall, gefur hann múrstein, ef hann geymix