Fylkir - 01.01.1927, Síða 38
40
nóg af kalki. Ef brendur með kalki, eins og áður er sagt, gefur hann
cement.
Hreinasta leirtegund, sem þekkist, kaolin, einnig nefnt kaolinlt,
drifhvítt ef hreint, meir eða minna krystaliserað í skáhliða, hexagonal
flísar, beygjanlegar en brothættar, H. 2—2,5. E.þ. 2,6—2,63, er eftir-
stöðvar af uppleystum steintegundum, sem kolsúrt vatn hefur rsent
alkali-efnum sínum og skilið silica (tinnuefni) og alumina (leir-
jarðarefni), meir eða minna vatnsblandin, eftir. — Efnasamsetning:
AI2O32S1O1 + 2H2O, n.l. ein ögn af alumina, tvær agnir af silica og
tvær agnir vatns. Þessi leirtegund finst einkum i Kína, þaðan er
nafnið komið og kallast, þegar hreint, postulíns leir. Úr honum er
postulín unnið. Kínverjar hafa kunnað þá list frá ómuna • tíð, en
Evrópumenn lærðu hana ekki fyr en snemma á 18. öld (1710). Gler-
húðin, glaseringin, á leirkerum, er gipsi blandað kaolin og brent á ný.
Vanalega er leir, þó fíxm, biandaður aðkomuefnum, svo sem jámi;
er því bleikur, gulur eða rauðleitur á lit. Sá leir dugar ekki til postu-
línsgerðar, en dugar þó til leirkerasmíðis. Sá leir finst víða hér á Is-
landi, einkum kringum laugar og hveri, þar sem vatnið hefur leyst
upp alkalí-efnin úr berginu í kring. Einna merkast leirlag hefur fund-
ist í Mókollsdal milli Gilsfjarðar og Bitrufjarðar. En sú leimáma var
seld vorið 1920, . að því sagt er, fyrir aðeins 500 kr.! Sjálfur hef
eg fengið afar fínan leir, móleitan á lit. Var sápukendur átektar,
krystaliseraður, óreglulegur skáhalli, smákornóttur, annars fínn. Svar-
aði, að því leyti, til teg. beauxit, sem er aðallega alumina, krystali-
serað með ofurlitlu vatni og blandað með jámoxyd. Efnasams.:
AI1O3+2H2O*). Stundum er aðeins ein ögn af vatni með einni af alu-
mina. Jámið gefur dökka litinn; annars gætir þess ekki, svo lítið er
af því. Af þessari teg. finst mikið á Frakklandi, og úr henni, ef hrein,
er aluminíum unnið. Af nefndu sýnishomi hef eg ekki fengið neina
efnagreining. Aðeins 2 sýnishom af leirtegundum hafa verið efna-
greind nokkum veginn nákvæmt (sjá 10. bls., VIII. árg. Fylkis).
Þau hafa aðeins 10% af kalki, en aluminium og járnoxyd, frá 32—
34%; hitt er silica, svo nefnd >kísilsýra<. Áform mitt, með söfnun
leirs, var fyrst og fremst það, að rannsaka nothæfi hans til múrsteins-
gerðar og cements-vinslu. Þessvegna safnaði eg 20 sýnishomum á einu
sumri (1920) frá ýmsum stöðum hér norðanlands, og sendi Efna-
rannsóknastofunni til nánari prófunar og umsagnar; en hef engar
skýrslur þaðan, um þær tegundir séð. Eg safnaði þessum tegundum
fyrir tilmæli H. H. Eiríkssonar, það sama sumar, er við urðum sam-
skipa frá Isafirði til næstu hafnar. Hann á leið vestur um fjöll, eg
*) Tegundin var mér send úr Illugastaðafjalli, Fnjóskárdal.