Fylkir - 01.01.1927, Side 39

Fylkir - 01.01.1927, Side 39
41 hingað norður. Kvaðst haxm skulu útvega kalkefnið til cements-vinslu, ef eg útvegaði leirinn. Eg gerði mína vísu, eins og ofanritað sýnir; en kalk-söfnunin og cement-verksmiðjan hefur legið í þagnargildi 'síðan. Meira í þá átt hef eg ekki getað gert, vegna félaysis, og get því ekki nákvæmlega sannað, að leirtegundir þær, sem eg hef safnað, séu haefar til cements. En það er hugboð mitt og álit, að mikið, ef ei mest, af þeim smiðjumó, sem finst meðfram ám og fljótum hér norðan- lands, og líklega eins sunnanlands, ef ekki moldarkendur eða sand- borinn, sé gott, ef ekki ágætt, efni í cement, blandaður 3 :1 af kol- súru kalki, og brendur í duft, sem áður er sagt. Leir frá hverum og laugum ætti að vera betri, en af honum er minna til. Það er þvi ekki leir né kalk sem mest vantar til eements-vinslu hér á landi, heldur lærðir fagmenn og fé, til framkvæmda. Fáist þeir, er bygginga þraiutin að miklu leyti leyst, því ekki vantar sandinn né blá- grýti í steypu, og úr henni má byggja hlý og góð hús, ef rétt er unnið, n.l. með tvöföldum veggjum og tróði, sem ekki fúnar né dregur í sig raka, að minsta kosti betri hús en flest eru nú. Til múrsteinsgerðar má nota grófari leirtegundir, ef ekki moldar- kendar né sandbomar til muna, og þær innihalda nóg kalk, eða eru blandaðar með kalki, svo nemi 25—30%; einnig má vinna úr þeim vatnsleiðslurör og mundi hvort-tveggja borga sig víða, þar sem stór leirlög finnast fram við sjó, eins og víða hér norðanlands. Múrsteins- verksmiðja ætti ekki að fara yfir 250,000 kr.; til að byrja með. Það gæti verið gott, að eiga eina eða tvær til að vinna múrstein fyrir sveitabændur, sem hvorki hafa vinnukraft til að höggva stein, né efni á að kaupa cement. Hreinustu leirtegundir, sem eg hef fundið, eftir útliti og átekt að dæma, eru þær, sem eg hef tekið í kringum laugar og hveri, eða ná- lægt þeim; svo sem á Reykjum í Fnjóskadal, Litlu- og Stóru-Laugum í Reykjadal. Á Þeystareykjum og við Mývatn er leirinn brennisteins- blandaður, þó fínn. Á Hraunum í Fljótum, Reykjum á Reykjaströnd og hér í Eyafirði og Hörgárdal, finst einnig talsvert af mjög fínum leir kringum laugar, og þann leir má líklega nota til leirkerasmíðis, þegar einhverjir hafa lært þá list nógu vel til að vinna úr því, sem hér er til. En cements-vinslan og múrsteins-brenslan eru meir áríð- andi og eiga að sitja fyrir. Vanaiega kalla menn það leir, sem er meir og minna blandað öðrum efnum, svo sem mold og sandi. Nothæfi vanalegs leirs, til jarðræktar, fer eftir samsetningu hans, eða blöndun við önnur efni, einkum alkali- efnin: Kalk, kali og natron (CaO, KjO, NaiO), einnig magnesia (MgO) o. fl., þar á meðal phosphorsýru. Þetta eru efni, sem jarð- vegurinn þarf að hafa, auk nitrogens, til þess að fóðurjurtir og mat-

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.