Fylkir - 01.01.1927, Page 41
48
greindri skýrslu innifelur fyrri deild 3. flokks þær sandtegundir, sem
eg hef safnað á síðustu níu árum, með tilliti til nothæfi þeirra til
steinsmíðis og ýmiskonar iðnaðar, Hvað hinu fyrra viðvíkur, þá er
gnægð af góðum blágrýtis-sandi víðast hvar að finna. Nokkrar sand-
tegundir, sem eg hef safnað — ein úr Fljótum — eru steypisandur.
Aðrar ríkar af járni og ef til vll öðrum málmum. Einkum er sandur-
inn meðfram Jökulsá í Axarfirði, Skjálfandafljóti og frá Bæ í Sléttu-
hlíð, mjög ríkur af járni. Gull hafa flestir sandar í sér, eitthvað ofur-
lítið, en sjaldan svo, að það borgi sig að vinna það. Engin efnagrein-
ing hefur verið gerð, á þeim sýnishornum, sem eg hef safnað, né
önnur rannsókn en með smásjá, segulstáli og lóðpípu. Er því ekki
meira um þá að segja.
Sandsteinar eru til orðnir úr sandlögum, sem harðnað hafa undir
fargi og límst saman undir áhrifum vatns og hita á tinnu- og kalk-
efnið í þeim. Merkasta sandsteins-tegundin, sem eg hef safnað, nr. 57
í steinaskrá minni, tekin á Tjörnesi, er að líkindum þannig til orðin;
þó hefur hitinn ekki verið nægur til að hita hann rauðann, en þann lit
tekur hann, þegar hitaður í eldi; verður þá á lit eins og Rvrðusteinn,
en er miklu þéttari, eins og sjá má á Tjörnesi, þar sem hann hefur
brunnið siðan lands-kolanáman var opnuð, 1917—18. Byrðusteinninn í
Hóla-Byrðu er saman-límd gosaska. Grái Tjörnessteinninn, er saman-
Hmdur sandur; límefnið kalk. Hann er auðhöggvinn, en heldur linur
til húsasmíðis, tæplega eins harður og kalksteinn, og drekkur í sig
vatn, nema húðaður sé með cementi.
V. fl. Móhella og Gosaska
(Fluvio-glacial Clays and Volcanic Ashes).
Móhella er skyld leir og leirsteinum á eina hönd og gosösku og mó-
bergi á hina, og oft ekki auðvelt hana frá þeim að greina. Hún er(
harðnaður leir, oftast ísaldarleir, blandinn sandeitlum, eða gosösku,
stundum hvorutveggja. Þessi sambreyskingur, harðnaður undir öðr-
um jarðlögum og orðinn að hálfgerðum steini, en þó lausari í sér,
leysist auðveldlega upp undir áhrifum vatns, en það gerir sand-
steinn ekki.
Eitt sýnishorn móhellu, harðnaður »ísaldarleir«, nr. 119, sjá 21. bls.
IX. árg. Fylkis, hefur að ósk minni verið efnagreint, og sýnir efna-
greiningin, að sú móhella inniheldur 10% kalk, það er fimmfalt meira
en yfirborðs-jarðvegur hér í grend hefur. Er hún því ekki ónýt,
sem jarðvegsbætir. Auk þess inniheldur hún næstum 82% af alumina