Fylkir - 01.01.1927, Page 52
54
fyrir áhrifum loptsins, sem annars mundi fljótt uppleysa þá og eyða
þeim. Úr honum, kolum og saltpétri er hið alþekta sprengiefni púður
búið til, og úr brennisteinssýringi (nS02) og vatni (nthO) má vinna
brennisteinssýru (nhh SO4). En með brennisteinssýru má vinna salt-
sýru (nHCl.) úr matarsalti (NaCl) og með saltsýru má framleiða
saltpéturssýru úr Chilisaltpétri NaK (N03)2. En þessar þrjár sýrur
eru skapanomir fjölda efnasambanda.
Brennisteinn finst víðsvegar um heim allan, þó einkum í grend við
eldfjöll og hveri, t. d. á ftalíu og á Kyrrahafseyunum. Ennfremur
er mikið af brennisteini í gipslögum, t. d. á Póllandi, og er hann oft
úr þeim unninn. Sömuleiðis er hann oft unninn úr pyrites, og járnið
um leið.
Hér á fslandi finst talsvert af brennisteini í grend við gamla eld-
fjalia gýgi bæði norðanlands og sunnan. Hér norðanlands eru þjóð-
kunnustu brennisteinsnámarnir hverimir í Reykjahlíðarfjalli (Kröflu),
Fremri námar á Mývatnsöræfum og brennisteinshveramir á Þeysta-
reykjum í S.-Þingeyjarsýslu.
Á Suðurlandi em Krisuvikur námamir nafnkunnastir, þó brenni-
steinn fixuiist víðar á Suðurlandi.
í Reykjahlíðarfjalli vestanverðu má sjá, meðfram veginum yfir
fjallið, fjölda rjúkandi hvera og í kringum þá flekki, eða fláka, gula
atf brennisteini, sem þar hefur fallið og sezt að á liðnum öldum, á
að gizka 1—1V2 hektar á stærð. Á Þeystareykjum er einnig fjöldi
’rjúkandi hvera og í kringum þá gulir eða grænleitir flekkir af
brennisteini, sem úr hverunum hefur komið. Kringum hveraopin er
þar ætíð lag af hreinum, eða næstum hreinum, brennisteini nokkura
þumlunga þykt. En utar er brennisteinninn mun óhreinni og bland-
aður leir.
Hve mikið eT til af brennisteini í Reykjahlíðarfjalli og á Þeysta-
reykjum, get eg ekki sagt með neinni vissu, því eg veit ekki til aði
það hafi verið nákvæmlega mælt eða kannað nýlega, eða á þessari öld.
En ekki skal mig furða þó þar finnist alt að 3—1 þúsund smálestir
af nýtilegum brennisteini og að úr því megi vinna 1 þúsund smá-
lestir, þ. e. 1 miljón kg., af hreinum brennisteini. En það, á 1 kr. kg.,
er 1 miljón kr. virðil*
* »Þegar mestur brennisteinn fékkst á Húsavík, voru þar árlega
hreinsuð 60000 (sextíu þúsund) punda af brennisteini« (sbr. 63.
bls. L'ýsing Islands eftir A. F. Bergsöe).
Til brennisteins hreinsunar hér á fslandi var efnt, samkv. kon-
unglegri tilskipun, árið 1761, og var hreinsuninni haldið áfram til
18. aldar loka. Námumar voru konungs eign, en voru leigðar fyrir
t