Fylkir - 01.01.1927, Blaðsíða 54
56
ysta hverinn, er hreinn brennisteinn. Var sent suður til prófunar sama
haust (sjá 84. bls. 6. árg. Fylkis). Hef ekki séð neina efnagreining á
þeim sýnish. frá rannsókna-stofunni ennþá, né annað en viðurkenn-
ingu frá þáv. formanni rannsókna-stofunnar, að þau koma til skila
sæmilega til fara.
Sumarið 1918 fór eg rannsóknarferð austur í Reykjahlíðarfjall ein-
samall til að athuga brennisteins hverina þar. Það var seint í Ágúst
mánuði um mesta heyanna tímann og örðugt að fá fylgdir. Athug-
aði eg þar aðeins fáeina brennisteins hveri meðfram veginum upp á
skarðið, og tók nokkur sýnishorn af ýmislega litum leir. Sneri þaðan
og hélt áfram austanvert við vatnið um stórbýlið Grsenavatn, og 'við
suðurströnd þess safnaði eg enn nokkrum sýnishornum á Litluströnd
og Baldursheimi, einkum af bláum leir, sem þar finst talsvert af og
sem sumir notuðu þar með cementi utan i á steinveggi, og þótti það
gefast vel. Þessi blái leir líktist mjög þeim, sem finst á Þeystareykj-
um og sem er meir og minna gipskendur.
Sýnishom þau, sem eg tók í Hlíðarfjalli, eru ekki talin í ofan-
greindri skýrslu, því ekkert þeirra var nægilega rannsakað, og suður
jsendi eg ekkert þeirra. — Steingjörfings flögur og flísar, teknar í
skálinni upp af Glerárdalsmynni, haustin 1916 og 1917, eru ei heldur
taldar, og glerhallar, fundnir hér út með firðinum, sumt af þeim suðu-
steinar (Zeoliþar), eru ei heldur taldir.
Kol (Þ. Kohl, E. Coal).
Kol eru margskonar að efnasamsetningu og gæðum. Aðalefni þeirra
er kolefni (ómálmurinn carbon). Hreint carbon krystaliserast í jafn-
ása oktohedra (sem stundum hafa 8X6, þ. e. 48 fleti); er glansandi
gagnsætt og skært, og harðast allra efna. H. 10; þ. 3,5. Lætur ekki und-
an sýrum, bráðnar ekki f. lóðpípu, en við megnan hita sameinast það
við oxygen og verður koksi líkt. Hreinir glansandi krystallar af
carbon eru demantar. Fægðir demantar eru afar dýrir, hvert carat
svo hundruðum króna skiptir.
Stórir demantar um 100 gr. hafa verið metnir svo milliónum króna
skiptir. Litaðar og lakari demant-tegundir eru oft notaðar í bergbora,
sem grafa sundur fjöll eða við önnur mannvirki. Graphit er önnur teg-
und kolefnis.
Kol má flokka eftir því, hve mikið kolefni (carbon) þau geyma, og
hve lítið vatn eða óbrennanleg efni þau geyma. Þessi tegund kola,
Anthracit kol frá Wales á Englandi og Úralfjöllum, teljast geyma um
90% (frá 88—95%) kolaefnis. Beztu þýzk kol, frá Westfal, beztu
frönsk kol og beztu Pennsylvania kol geyma 80% kolaefnis. í næsta