Fylkir - 01.01.1927, Blaðsíða 58
60
Steinkol geyma 80% kolefni og 7600 hitaeiningar í hverju kg.
Brúnkol geyma skv. sama riti aðeins 40% kolefnis; hitamagn þeirra
er aðeins 3600 hitaeiningar. — Hitamagn steinkola er bersýnilega of
hátt reiknað, samkv. ofanritaðri reikningsreglu, en brúnkol aftur á
móti talin alt of fátæk af kolefni, og alt of hitalítil. Aðeins nákvæmar
athuganir og efnagreiningar, geta skorið úr, hvaða hitamagn, eitt eða
annað eldsneyti geymir, og hve mikið kemur að notum, þegar því er
brennt.
Einn er þó galli á þessari gjöf Njarðar, n.l. á kolum og mó, sem
eldsneyti, þó dýrmæt hafi þótt og þyki enn, sem hitalind og sem orku-
gjafi og þó gefið hafi þau ýmsum Evrópu-þjóðum mikil völd og auð-
legð, svo sem Bretum, Þjóðverjum, Belgum og Frök"kum, einnig öðr-
um þjóðum austan hafs og vestan. Kol og mór, í hverri mynd, sem þau
eru brend, eyða meir en jafnvigt sinni af lífsloftinu oxygen og mynda
um leið gastegundina kolsýru, fyrst einsýringinn, sem er baneitrað gas,
síðan tvísýringinn, vanalega kolsýru, sem gerir tvitugfalt sína vigt af
andrúmslopti óhæfa til innöndunar.
Eins og áður er sagt, er atom vigt kolefnis 12, en oxygens 16. Þegar
kolum eða mó er brent, sameinast 12 kg. kolefnis við 16 kg. oxygens
og mynda fyrst einsýrings-kolsýru 28 kg. að vigt, nærri eins þétta og
loptið, rúml. 21 ten.m., síðan sameinast kolefnið (12 kg.) öðrum 16
kg. af oxygen og myndar 44 kg. af kolatvísýringi, vanal. kolsýru. Þann-
ig hafa þessi 12 kg. kolefnis framleitt 44 kg. kolsýru, þ. e. ellefu '
þriðja = 3% vigtar sinnar af óhóllu gasi, (sem er h. u. b. 1% sinnum
þyngra en lopt, svo að hver tén. m. af því vegur 2 kg. Við brenslu 12
kg. kolefnis myndast því 22 ten. m. kolsýru (COa). En það gas gerir
tvítugfalt sína vigt af andrúmslopti, óhæft til innöndunar.
Hver 5 kg. kola sem geyma 60%kolefnis, þ. e. 3 kg. kolefnis alls,
eyða því, fyrst 4 kg. lífslopts og mynda um leið 7 kg. eða 7 ten.m.
kolaeinsýrings (CO) eiturgas og síðan, ef nóg lopt er til, öðrum 4 kg.
lífslopts og mynda um leið 11 kg. kolatvisýringsins (CO2), sem er eins
og þegar er sagt hálfu öðru sinni þyngra en lopt og leitar því niður til
jarðar úti, en gólfs inni, og gerir samkvæmt trúverðra lækna áliti
20 falt sína vigt af andrúmslopti, óhæft til innöndunar. En 20 sinnum
11 kg. eru 220 kg. sem svarar til 166 ten. m. andrúmslopts. 10 kg. sömu
kolategundar eyða auðvitað tvöfalt meira lífslopti, n.l. 16 kg. lífslopts
og mynda 22 kg. kolsýru sem gerir tvítugfalt sína vigt þ. e. 440 kg.
eða 330 ten. m. andrúmslopts óhæft til innöndunar. Með öðrum orðum
hvert kg. kola, sem geymir 60% kolefnis, eyðir 1,6 kg. af lífslopti og
framleiðir 2,2 kg. af kolsýru (CO2) og gerir 33 ten. m. andrúmslopts
óhæfa til innöndunar. Hver smálest sömu kola, sem brend er, gerir auð-
vitað 1000 sinnum betur, eyðir 1600 kg. eða nærri jafn mörgum ten. m.
/