Fylkir - 01.01.1927, Blaðsíða 70

Fylkir - 01.01.1927, Blaðsíða 70
72 annarar meiri, eins og raun varð á. Stjóm íslands var þá þegar komin út á hina hálu og hættulegu braut lántaka erlendis og það á meðan sjálfstæði og fullveldi hins íslenzka þjóðfélags var talið þess æðsta tak- mark. Því lánsfé var ekki varið til að virkja orkuvötn fslands og um leið rafhita og raflýsa híbýli almennings, né til að vinna áburð úr lopt- inu, svo nauðsynlegan til arðberandi jarðræktar, né til að vinna málma úr bergtegundum landsins. Fé landsmanna fór mest til sjávarútvegs- ins, til kola og munaðarvöru-kaupa og til ýmiskonar tildurs og hégóma, og lánsféð fór stundum til að afstýra tekjuhalla og gjaldþurð vegna sívaxandi útgjalda. Þegar svo heims-ófriðurinn skall á, voru landsmenn alveg óviðbúnir, áttu hvorki nóg eldsneyti til að hita heimili sín, né matárbirgðir til næsta árs, né klæðnað til hversdags og hátíða, né efni til að endur- reisa hrörleg hús og bæi. Fráfærur og skyrgerð höfðu lagst niður víð- ast hvar, vegna fólkseklu til sveita, svo einnig tóvinna og heimilis-iðn- aður sveitafólks. Stúlkurnar og piltarnir flestir komnir til kaupstað- anna til að vinna við fisk og síld á sumrum, en skemta sér, menta sig pxmta sig á vetrum. Allt eða því nær allt þurfti að kaupa frá útlönd- um, fæði, klæði, skófatnað, eldsneyti og Ijósmeti, ofna, lampa, lampa- kveiki, steinolíu og húsavið, títuprjóna og hárnælur. — Það gekk fyrsta ófriðarárið, en árið 1916 kom snurða á örlagaþráð íslands. — Bretar, hinir hákristnu og voldugu Bretar, létu það boð út ganga snemma árs 1916, að íslendingar hér á landi mættu alls ekki verzla við Þjóðverja né aðra stríðs aðila en sig, meðan ófriðurinn varaði, annars fengju fslendingar engin kol, né steinolíu né aðrar nauðsynja- Vörur hjá sér, og sömuleiðis yrðu íslendingar að selja vörur sínar við því verði, sem Bretum sýndist hæfilegt, og kaupa Brezkar vörur við því verði, sem Bretar ákvæðu. Næsta ár, 1917, varð nær H millión króna verzlunarhalli. Fyrir út- fluttar vörur fengust 29% millión króna, en verðhæð aðfluttra vara nam 43 milliónum kr. Um leið varð skuld landssjóðs næstum 14 milli- ónir króna. í lok næsta árs (1918), er þjóðskuldin orðin 19% millión króna. Þá var ísland opinberlega viðurkent sem sjálfstætt or/ full- valda ríki. Þá fengu fslendingar fult frelsi til að liggja undir ógur- iegri skuldabyrði eða afborga hana sem fyrst, ellegar í þriðja lagi, drepast og gefa betri mönnum land sitt til eignar og ábúðar. Þeir höfðu eins og frændurnir fótalausu bitið á öngulinn og Jón Boli kippti að sér færinu og innbyrti þorskinn. Af töblu, sem birtist á 55. bls. III. árg. Fylkis, má sjá hvernig tekj- ur og útgjöld margfölduðust á árunum frá 1876—1913. Á fyrstu 17 ár- unum þrefaldast gjöldin en tekjunjiar aðeins tvöfaldast. Arið 1901 eru tekjumar þrefalt hærri en 25 árum áður, en gjöldin ferfalt hærri. Ár-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.