Fylkir - 01.01.1927, Side 78

Fylkir - 01.01.1927, Side 78
80 um núverandi fjárm.ráðh. efna illa loforð sín, að leysa landið úr skuld- um og sumir íhaldsmenn eru ekki alveg ánægðir með fyrirætluð störf sem seinna lánið á að styrkja. En Framsóknarflokkurinn hefir ekki verið nógu sterkur til að hafna frumvarpi Stjórnarinnar um leyfi handa Landsbankanum til að taka 9 millión kr. lán vestan hafs. í Neðri Deild hafði sá flokkur þó, að jafnaðarmönnum meðtöldum, fleiri atkvæði, en sat af sér tækifærið og feldi ekki stjórnarfrv., sem með 4% millión kr. láninu nærri tvöfaldar skuldir ríkisins um leið og það er tekið. Hverjar eru helztu orsakir fjárhagsvandræðanna? Fyrst og fremst gengishæklcun krónunnar á árunum 1924 og 1925,. segja Tímamennirnir, leiðtogar Framsóknarflokksins (sbr. Tímann s. L vetur). Þeirri kenningu hefur fjárm.ráðh. rækilega mótmælt í grein sinni Gengi og fjárhagur, sem birtist s. 1. Febr. í bl. Vörður. í þeirri grein, segir fjárm.ráðh., núverandi fjárkreppu stafa að nokkru leyti af rýrn- un útfl. sjávarafurða, en mestmegnis af lágu verði á íslenzkum afurð- um. Allar kreppur, segir fjárm.ráðh., sem yfir ísland hafa gengið á þessari öld, stafa af einni og sömu orsök, lágu verði af ísí. afurðum í samanburði við alment vöruverð í heiminum, eða á þeim vörum sem vér flytjum til landsins (sbr. 5. tbl. Varðar þ. á.). Hér er ekki rúm til að rökræða staðhæfingar Tímans né röksemdir fjármálaráðherrans; en svo mikið er víst að bæði hann og andstæð- ingar stjórnarinnar gengu næstum þegjandi fram hjá tveimur megin orsökum núverandi fjárkreppu, jafnt sem þeirra, sem á undan henni hafa gengið síðan 1914. Megin orsök þeirra allra hefur verið gífurleg innkaup útlendra vara sem engin vissa var fyrir að útfluttar ísl. afurðir gxtu borgað • þau innkaup,mcs tmegnis til að halda áfram alt of djarfri sjávarútgerð og um leið fullnægja sívaxandi kröfum og þurftum sí-fjölgandi kaupstaða- lýðs, sem sat þar nauðugur viljugur, með meir og minna sviknar vonir, Önnur orsök fjárhags vandræðanna var dæma-fá eyðslusemi á því nær öllum sviðum þjóðlífsins, nema, ef til vill, í afdölum og fjalla-bygðum landsins. Sannanir fyrir þessu eru gefnar í II. til IX. árg Fylkis. Af skýrslum þeim, er þar eru birtar, einkum II. III. VII. og IX. árg., má sjá hví- líkum feikna upphæðum landsbúar hafa fleygt út fyrir munaðar og ó- þarfar vörur og hve ógurlegar upphæðir hafa farið til sjávarútvegsins. í samanburði við það, sem varið hefur verið til landbúnaðarins, sem þó hefur framfært fullt helming ef ei % allra landsbúa. Einnig sýna þær að eyðslan fyrir munaðarvörur hefur næstum tvöfaldast á þessari öld. Hver eru bjargráðin? Stýfa krónuna og breyta um stjórn, segja

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.