Fylkir - 01.01.1927, Page 87

Fylkir - 01.01.1927, Page 87
89 aðar tillögur í þá átt, birtar í þessu riti fyrir nokkru síðan og í skrifum til alþingis. þess skal og getið að síðastliðið ár og árið 1925 samdi útgefandi Fylkis yfirlit yfir mælingar og útreikninga, gerða á síðustu 10—11 árum, fimtán vatnsorku-svæða, sem til orða hefur komið að rafvirkja í þarfir almennings. Hafa þau til samans nóga orku til að framleiða 60—70 þúsund kilow. En það er tvöfalt sú orka, sem nægir til aimennrar herbergjahitunar, Ijósa og iðnaðar í þarfir almennings, þó Norðurland telji nálægt 30 þúsundir manns, eða 4 til 5 þúsundum flefri en Norðurland telur nú. Verður þessa yfirlits getið nánar svo fljótt, sem kringumstæður leyfa. Önnur erindi hefur útgefandi þessa rits ekki að flytja nú, en hann hef- ur þegar minst á og jafnvei rökrætt í fyrri útgáfum þessa rits og ýmsum blöðum h'T norðanlands og sunnan, þar á meðal járnbrautarmálið, n. I. lagning járnbrautar um suðurland, endurvakið fyrir 12 árum síðan, til sællar minningar; sömuleiðis virkjun helsta vatnsfalls íslands, Þjórsár o. fI., til að koma upp »stóriðnaði« hér á landi með auðmanna starfsfé, út- lendu, að nafninu til, en í raun og veru upp á landsmanna eigin ábyrgð og kostnað. Þess skal einnig getið, að útgefandi Fylkis hefur á síðustu 9 árum þegið af oplnberu fé 8200 kr. ísl. þ. e. sem svarar 900 kr. á ári til jafnaðar, eða tæpt 1 eyrir á hvern landsbúa. Upphæð þessi er að vísu aðeins einn átján- þúsundasti þeirrar upphæðar, sem farið hefur til opinberra gjalda íslands á síðustu 12 árum, n. I síðan 1915, þegar höf. þessara lína byrjaði at- huganir sínar og rannsóknatilraunir hér norðanlands; en hún er alt of há, ef steinasöfnun og jarðtegundarannsóknir hans hafa verið óþarfar og starfið gagnlaust verk, eða ekki vert ofangreindrar upphæðar. Þessvegna vill sami elcki þiggja neinn styrk af almannafé til nýnefndra rannsókna, nema nyt- semi þeirra sé viðurkend og sú upphæð nægi honum til lífeyris og við- unanlegra framkvæmda. En þær eru því aðeins mögulegar, að hentugri rannsóknarstofu sé komið upp hér norðanlands með tilheyrandi áhöldum, þó hún og þau kosti alls fimtíu þúsundir gullkróna eða rúmlega tvær krónur gulls á hvern Norðlending. — Treystandi því, að Norðlendingar sjái ekki eftir svo lítilli upphæð, né Akureyri sjálf eftir helmingi hennar (25 þús. kr. gulls, þ. e. um 30 þús. kr. ísl ), sem er aðeins 'U þess, sem farið hefur til bíósýninga og opinberra skemtana á síðastliðnum vetri, sendir útgefandi Fylkis Norðlendingum kveðju sína og óskar þeim góðs og heillaríks sumars. Akureyri, 10. Mai, 1927. F. B. >1.

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.