Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1895, Page 10

Eimreiðin - 01.07.1895, Page 10
9o Mór og kol. I lopthvolfinu umhverfis jörðina eru, þegar vatnsgufunni er sleppt, allt að 4/5 köfnunarefni, */4 lífslopt (súrefni) og auk þess ýmsar lopt- tegundir, sem miklu minna gætir; er þar efst á blaði kolsýran og j)ó ekki meira af henni en 3 hlutar í hverjum 10,000 af lopti. Kolsýra streymir víða upp úr jörðu, og mundi brátt verða svo mikið af þessari banvænu lopttegund i andrúmsloptinu, að öllu dýralifi væri hætta búin, ef ekki eyddist hún á einhvern hátt. Pað eru jurtirnar, er einkum sjá fyrir þvi, að ekki verði of mikið af kolsýrunni i loptinu, þvi að þótt hún sje dýrunum banvæn, þá er hún lifsskilyrði fyrir jurtirnar; þær geta sundrað kolsýrunni í frumefnin, kolefni og súrefni; kolefninu halda þær eptir og mynda úr þvi og vatni ýms »organisk« sambönd; súrefninu sleppa þær aptur og verða þær þannig til þess að bæta loptið. Af þurk- uðum jurtum er nærri því helmingurinn kolefni og allt kolefni, sem er i jörðu og á, i trjám, mó og steinkolum, hafa jurtirnar »búið til« úr kolsýru loptsins. I ritgerð þessari mun verða farið nokkrum orðum um, hvernig jurtirnar verða til þess, að kolefnið safnast fyrir i jörðunni, i mó og kolurn, og ýms atriði er þar að lúta, og skal þess nú þegar getið, að mór, surtarbrandur (mókol) og steinkol eru liðir i samhangandi breyt- ingaröð, sem miðar til þess, að úr jurtunum verði á endanum hreint kolefni. 7. Mór. Stöðuvötn myndast þar, sem lægðir og lautir eru á yfirborði jarð- arinnar, ef loptslag ekki Sannar. Stöðuvötn eru skammæ i jarðfræðisleg- um skilningi; náttúran, bæði hin lifandi og hin dauða, starfar sifellt að því, að útrýma þeim. Sumstaðar eru það einkum ár og lækir, sem bera í þau möl og aur og fylla þannig upp i þau með timanum; annars- staðar er það jurtagróðurinn, sem smátt og smátt gerir mýri, þar sem vatnið var áður. Virði menn fyrir sjer stöðuvatn eitt í breiðum dal eða á sljettlendi; það er stórt að ummáli en grunnt, engar ár eða lækir renna í það svo teljandi sje, en allt vatnið vellur upp um lindir á botn- inum; ýmsar starartegundir setjast að við bakkana, þar sem grynnst er. Pær færa sig stöðugt lengra og lengra út i vatnið, blöð og stönglar deyja og sökkva til botns, en allt af vaxa nýir angar og nýir stönglar út úr rótarstokkunum og fer svo að lokum, að jurtagróðurinn hylur alveg yfirborð vatnsins; vatnið er orðið að mýri. Aðrar mýrajurtir setjast nú að, og rætur allra þessara jurta fljettast saman á ýmsan hátt og mynda þjetta flækju, en undir er þunn leðja af rotnandi jurtaleifum og vatni. En það er af þessum jurtaleifum að segja, að lopt kemst ekki að þeim til muna, og þvi verður það, að þegar þær sundurleysast, þá sameinast efni þeirra innbyrðis; sum mynda lopttegundir, er leita burt, en það, sem eptir er, verður ávallt tiltölulega auðugra og auðugra að kolefni, og kemur þannig fram sú jarðtegund, er menn nefna mó; komist nóg lopt að rotnandi jurtaleifum, þá sameinast kolefni þeirra súrefni loptsins og

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.