Eimreiðin - 01.05.1896, Blaðsíða 57
137
Tynwald er sama orð og f’ingvöllur, en er brúkað um hól, senr
stendur á vellinum og er lögberg þeirra Manarbua. Pingmenn neðri
deildar Manarþings (The House of Ke.ys) eru goðarnir, sem skipa lög-
rjettu. Var hún áður i.heiðnu hoíi, en nú sitja þeir, tvær tylftir manna,
(á Oxarárþingi voru fjórar tylftir í lögrjettunni) í kórnum í St. John’s
Chapel. Úr hofi þessu ganga þeir hátíðisgöngu til lögbergs og er það
lögbergsgangan eða dómaútfærslan á Öxarárþingi. Virðist þetta
allt vera með sama sniði og var við Öxará.
I fararbroddi gengur jarl (Governor) og biskup. Þá tveir »deemsters«
(dómstjórar) og eru þeir lögsögumenn. Víkur þvi svo við, að i fyrnd-
inni voru tvö þing á Mön og sinn lögsögumaðurinn á hvoru. Var þeirn
svo steypt saman, en lögsögumenn hafðir tveir eptir sem áður. f*á
gengur næst efri deild (the Council) og síðan neðri deild.
Tegar við Caine komum á Þingvöll, voru þar fyrir margar þúsundir
manna. Var þar reist tjald við tjald, en fánar blöktu við. Mikill ys og
þys var milli búðanna og þótti mjer um stund sem alþingi hið forna
væri risið upp úr gröf sinni, þó ekki bæri á hinum dýrðlegu furðu-
verkum, sem náttúran hefur reist við Öxará. Manarþing er jafngamalt
alþingi. Pað var stofnað á dögum Orry (Orra) konungs, á tiundu öld.
Guðsþjónusta var fyrst haldin í kapellu Jóhannesar. Síðan gengu
þingmenn traðirnar til lögbergs og voru þær alskipaðar hermönnum með
brugðnum sverðum. Jarl gekk fyrstur. Heitir hann Sir West Ridgeway
og er tigulegur maður sýnum. Hann var í gullsaumuðum fötum, og hið
forna konungasverð Manar'var borið fyrir honum og vissi oddurinn upp.
Þá gekk biskup í skrúða sínum, þá klerkar og lögsögumenn. Pingmenn
efri deildar gengu næst. Sú deild er skipuð þessum mönnum: biskup,
yfirdómari (attorney-general), tveir lögsögumenn (deemsters), Clerk of the
rolls (skjalavörður), ivater-bailiff (umsjónavmaður fiskiveiða), receiver-general
(landfógeti), archdeacon (erkidjákni) og vicar-general (officialis). Eru þeir
allir skipaðir af Englandsstjórn nema vicar-general, sem er skipaður af
biskupi.
Neðri málstofan heitir, sem áður er sagt, Hoase of Keys og er skipuð
24 mönnum. Guðbrandur Vigfússon hjelt að Keys væri leitt af sagn-
orðinu að kjósa, en prófessor Rhys heldur það sje komið af keltnesku
orði, sem þýðir 24. Eynni Mön er skipt í 6 umdæmi, sheading (skeið-
þing þ. e. hjerað, sem skylt er að búa eina skeið), og velur hvert
þeirra 3 menn, en bæirnir Castletown, Peel og Ramsey (Rafns-ey) 1 þing-
mann hver og höfuðborgin Douglas 3 þingmenn. Pingmenn eru kosnir
til 7 ára og verða að eiga tiltekna upphæð í fasteign og fje til kjör-
gengis. Kosningarrjett hafa allir karlmenn, sem eru leiguliðar eða jarð-
eigendur, og allir kvennmenn, sem eru jarðeigendur. Þingmenn voru
sjálfkjörnir, líkt og goðarnir á íslandi, til 1866. Pað ár ljetu þeir það
framganga, að þeir skyldi kosnir með almennum kosningum, gegn þvi
að þeir fengju i staðinn að ráða, hvernig varið væri tekjuafgangi Manar.
Um leið samdist með þeim, að Mön skyldi greíða árlega 180,000 krónur
til her- og flotakostnaðar Bretaveldis.
Árstekjur Manar eru rúmlega 70,000 pund (1,260,000 kr.) og út-
gjöld rúmlega 5 0,000 pund eða allt að miljón króna. Pegar þess er
gætt, að Mön er aðeins hundrað sjötugasti og sjötti partur Islands (2270