Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1896, Blaðsíða 73

Eimreiðin - 01.05.1896, Blaðsíða 73
153 einfalt, látlaust og auðskilið. Er eigi laust við það, að oss finnist höf. rita þýð- ara mál að tiltölu, er hann ritar dönsku, en íslenzku. Ennfremur er bókin áreið- anleg og nákvæm; sárfáar villur hef jeg rekið mig á. Dvöl Sigurðar slembis á Islandi (bls. 28) hafði jeg sett árið 1135 — 36 og erþaðnærri því, sem höf. hefur gert, enþó er þetta eigi alveg víst. »Toppr fyr nefe« (bls. 146) á líklega að skilja sem topp- ur fyrir framan eða neðan nefið, þ. e. skegg, Hildigunni tröllkonu þykir undar- legt, að sjá það á svo litlu barni sem Oddi, því barnunginn hann bróðir hennar mun eigi hafa haft það, og var hann þó meiri vexti. Misritazt eða misprentazt hefur Nikolaus af Sabina í staðinn fyrir Vilhjdlmr af Sabina (bls. 100), 1155 í -Staðinn fyrir 1195 (bls. 168). Dagstyggr Þórðarson dó af sótt en ekki sárum. — En allt þetta eru smámunir. Það er bæði gagnlegt og gaman að lesa um forfeður vora. Vissulega hafa þeir afrekað rnikið á 10., n. og 12. og líka á 13. öldinni, að því er bókmennt- irnar snertit; en menn hafa þó varla gætt þess nógu vel, hve vel þeir stóðu að vígi að sumu leyti. Hins vegar niega þeir þó eiga það, að þeir framan af lögðu mikla stund á búnaðinn og á það, að halda efnahag landsins í svo góðu lagi, sem unnt var. En um 1200 var allur grundvöllurinn undir stjórnarskipun lands- ins genginn úr lagi. Þá tók og sjerplægni forfeðra vorra og ólöghlýðni, sundur- lyndi og aðra spilling þeirra að keyra fram úr öllu hófi. þ>eir gættu sín eigi og týndu frelsi sínu. Allt þetta, öll vor saga er næsta lærdómsrík, er menn athuga hana ræki- lega. Jeg veit eigi, hvar ungmenni Islands geta fengið fegurri dæmi til fyrir- myndar og uppörvunar eða önnur áhrifameiri til aðvörunar en úr henni. u'h. 1896. Bogi Th. Melsteð. íslenzk hringsjá. BÆKUR SENDAR EIMREIÐINNI: HIÐ ÍSLENZKA GARÐYRKJUFJELAG 1895 og 1896. í hinum fyrra árgangi þessa ritlings er fyrst skýrt frá tilgangi Garðyrkjufjelagsins, og er hann í fám orðum sá, að glæða áhuga landsbúa á garðy'rkju, útvega rnönnum gott og nægilegt fræ til útsæðis og afla þekkingar á því, hverjar tegundir þrífast bezt á Islandi, og sjá um, að þessi þekking útbreiðist meðal almennings. Auk þess eru í þessum árgangi stuttar ritgerðir um gulrófnaræktun, kartöplur, blómkál, græn- kál, pípulauk, spænskan kerfil, arfa, sáning og ræktun gulrófnafræs, o. fl. I hinum síðara árgangi er um blómrækt úti og inni, um savojkál og toppkál, gulrætur, hvönn, heimilisnjóla, rhabarber, ribs, geymslu matjurta o. fl. Af rit- gerðurn þessum eru flestar eptir fyrv. landlækni Schierheck, nokkrar eptir land- fógeta Arna Thorsteinsson, en hinar eptir skólastjóra Torfa Bjarnason, garðyrkju- nemanda Einar Helgason, búfræðing Aðalstein Halldórsson, sýslumann Björn Bjarn- arson o. fl. Þó þetta ársrit sje ekki fyrirferðarmikið (um 30 bls. hvert, í mjög litlu broti), þá eru þó í því svo margar góðar bendingar fyrir íslenzka búendur,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.