Tölvumál


Tölvumál - 01.09.1993, Page 3

Tölvumál - 01.09.1993, Page 3
Skýrslutæknifélag íslands 25 ára I upphafi tölvualdar Sýning haldin í Geysishúsinu við Aðaistræti dagana 3. til 19. september 1993. í tilefni 25 ára afmælis SÍ ákvaö stjórn félagsins og afmælisnefnd aö efna til sýningar á tölvubúnaði og þróun hans á þessum 25 árum. Á tímamótum sem þessum er oft nauösynlegt að staldra aöeins viö og skoða hvað hefur gerst hér á íslandi í tölvumálum. Viö þurfum aö varöveita þau tæki sem hafa valdið straumhvörfum í sögu tölvunotkunar hér á landi. Viö þurfum að safna myndum af helstu atburöunum og minnast þeirra tölvumanna sem markaö hafa djúp spor. Komandi kynslóðir munu hafa áhuga á þessari þróun og þaö er á okkar ábyrgö aö varðveita sem best þessa sögu. Ákveðið var aö leita til sérfróðra aðila og hafa Þjóöminjasafn íslands og Árbæjarsafn hafa lagt fram mikilvæga þætti við undirbúning og útlit. Sýningin tekur til eftirfarandi þátta: - Sýning á tölvubúnaði sem notaður hefur verið á íslandi síöasta aldarfjórðung, frá gataspjalda- vélum til ferðatölva af fullkomnustu gerð. - Sýnd þróun ávélbúnaði ásíðastaaldarfjórðungi. - Skýrr og Póstur og sími munu kynna dæmi um þá þjónustu sem þeir veita og standa fyrir sérstökum dagskráratriðum. Ýmsar uppákomur verða auglýstar sérstaklega og má þar meðal annars nefna: - Ottó A. Michelsen og fleiri munu segja frá og sýna hvernig gömlu vélarnar voru notaðar. - Gerð sjónvarpsauglýsinga með aðstoð tölvu. - Hvernig tölvutæknin getur verið sem hjálpartæki fyrir fatlaða. - Kynning á íslenska menntanetinu, en þaðbyggir á nýjustu tækni í tölvusamskiptum. - Tölvur notaðar við gerð tónlistar. - Hugbúnaðargerð sem ný útflutningsgrein. Er þetta aðeins hluti af því sem verður á boð- stólum. Undirbúning sýningarinnar hafa annast: Kjartan Ólafsson, Ottó a. Michelsen, Frosti Bergsson, Gunnar Linnet og Laufey Ása Bjarnadóttir af hálfu SÍ, Lilja Árnadóttir frá Þjóðminjasafnsins og Unnur Björk Lárusdóttir frá Árbæjarsafni. Ritnefnd Tölvumála hefur helgað sýningunni þetta tölublað í heild sinni og fylgir það henni sem sýningarskrá. Hér er fjallað um söguna og þróun tölvumála undanfarinna ára í mörgum merkilegum greinum. Notkun tölvutækninnar í íslensku þjóðlífi er stað- reynd í dag. En við erum aðeins að taka fyrstu skrefin, 25 ár er ekki langur tími. Búast má við að á næstu 25 árum verði þróunin enn hraðari en fyrstu 25 ár tölvutækninnar. Það má því með nokkurri vissu segja að undanfarinn aldarfjórðungur marki upphaf tölvualdar. Það er von okkar að sá fróðleikur og munir sem verða á sýningunni og skrif greinahöfunda í sýn- ingarskrá verði til þess minna okkur öll á að varð- veita minjar um upphaf tölvualdar. Sýningin er opin virka daga kl. 9 -18 og um helgar kl. 11 -18.

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.