Tölvumál


Tölvumál - 01.09.1993, Blaðsíða 20

Tölvumál - 01.09.1993, Blaðsíða 20
September 1993 nógu góðir og varð það til þess að margir góðir menn hættu að starfa á þessu sviði. Misnotkun á trausti Klemens T ryggvason fyrrverandi Hagstofustjóri, einn af frum- kvöðlunum í notkun tölvutækn- innar, var mjög nákvæmur í sínu starfi og hef ég alla tíð borið mikla virðingu fyrir honum. Það fór alltaf mjög vel á með okkur og þótti mér það því mjög miður er hann hringdi eitt sinn til mín, hinn reiðasti, og taldi mig hafa brugðist því trausti sem mér hefði verið sýnt gagnvart notkun á þjóðskránni. Ég kannaðist ekki við neitt slíkt og óskaði eftir að fá að ræða málið við hann á Hagstofunni. Þegar ég kom þangað kom Klemens á móti mér Ottó A. Michelsen heiöursfélagi SÍ rifjar upp minnisstæð tölvutækninnar á íslandi. "..ég er búinn að vinna 10áravinnuínótt!" Mikilvægur liður í lífsbaráttu minni var að selja Háskóla Islands tölvu af gerðinni IBM-1620. Ég / Ottó A. Michelsen þurfti mikið að hafa fyrir þeirri sölu því samkeppnin var hörð og til þess að sannfæra kaupendurna um ágæti vélarinnar þurfti að fá lánaða, í nokkrar vikur, vél frá Kanada sem búið var að selja til Finnlands. Þetta krafðist mikils skipulags, bæði flutningurinn sjálfurog allur annar undirbúningur. Það var t.d. mikið vandamál að koma vélinni inn í flugvélarnar því dyrnar voru ekki nógu stórar. Til þess að koma vélinni til Islands varð hún svo að fara eftirfarandi flugleið:Kanada-England-ísland og síðan áfram Ísland-Frakkland- Noregur-Finnland. Nauðsynlegt reyndist að fá lánaða sérfræðinga frá Dan- mörku og Noregi til aðstoðar og til þess að nýta lánstímann sem best voru ýmsir aðilar búnir að gata þúsundir spjalda áður en vélin kom til landsins. Það má með sanni segja að vélin var vel nýtt meðan hún var hér því hún var keyrð 24 tíma á sólarhring. Dr. Stefán Aðalsteins- son var þá að vinna að doktors- ritgerð sinni og fleiri verkefnum og bað mig afsökunar því þarna hafði verið um misskilning að ræða. Þetta sýndi mér þá miklu virðingu sem Klemens hafði fyrir hlutverki Hagstofunnar við rekstur þjóðskrárinnar og þar með þeim kröfum sem gerðar voru um notkun hennar. Þetta atvik varð því síður en svo til þess að skyggja á okkar áralöngu og ágætu samvinnu. ik frá fyrstu árum og var einn þeirra manna sem notfærðu sér vélina. Eitt sinn er ég kom til vinnu að morgni mætti ég Stefáni illa til reika og slagaði hann á móti mér út í dyr. Ég hugsaði með mér "Guð minn almáttugur, nú hef ég leyft honum að vera hér í nótt og hann kemur út draugfullur að morgni!" og ekki bötnuðu hugsanir mínar þegar hann gekk til mín og vafði mig örmum en loks áttaði ég nrig þegar Stefán sagði brosandi "Ottó ég er svo glaður, ég er búinn að vinna 10 ára vinnu í nótt!" James Bond á íslandi! Fyrstu árin mín í vinnu ein- kenndust af mikilli vinnuhörku og vinnugleði. Ég byrjaði að byggja upp fyrirtæki mitt árið 1946 en ekki er hægt að segja að ég hafi tekið mér sumarfrí fyrr en árið 1965. Ég var alltaf á vakt, 20 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.