Tölvumál


Tölvumál - 01.09.1993, Blaðsíða 23

Tölvumál - 01.09.1993, Blaðsíða 23
September 1993 hans allt of skamma hríð við, tæp 4 ár, því hann fórst í hörmu- legu bílslysi 18. júní 1977. I stað hans var Þórður Sigurðs- son ráðinn forstjóri og hefur hann gegnt því starfi síðan. Hann hafði unnið í undirbúningsstarfshópn- um og eftir það verið fulitrúi Búnaðarbankans í samstarfs- nefnd um RB. Helgi Bergs var, eins og áður sagði, fyrsti formaður stjórnar RB og var hann formaður í 7 ár. Jónas H. Haralz, bankastjóri Landsbankans, tók við af Helga og var formaður í 8 ár, en síðustu 5 árin hefur Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðarbankans, verið formaður stjórnar RB. Formenn samstarfsnefndar hafa verið tveir, fyrstur Gunnlaugur heitinn Björnsson, Utvegsbank- anum, en síðastliðin 10 ár hefur Helgi H. Steingrímsson, Lands- bankanum, verið formaður nefndarinnar. Hér á eftir fer 20 ára saga RB í örstuttu annálsformi, eins og hún var rakin á aðalfundi í mars s.l.: 1973 15. nóvember var haldinn fyrsti fundur samstarfsnefndar. Samþ. tillaga um kaup véla frá IBM. 1974 í ársbyrjun var ráðið fyrsta starfs- fólkið til að læra og vinna svo að kerfissetningu og forritun. 1975 I ársbyrjun var ráðið fyrsta starfs- fólkið í vinnsludeild. I júlí hófst tilraunavinnsla með bókun ávísana- og hlaupareikn- inga útibús Útvegsbankans í Kópavogi, enda hægt um vik, því að RB var í sambýli við það ágæta útibú í 11 ár. í desember var haldinn 1. aðal- fundurinn, og þá lokið yfirtöku allra bankanna í fyrsta verkefnið, ávísana- og hlaupareiknings- verkefnið. 1976 I júní voru skjalaskiptin (clear- ingin) tilbúin, og við fórum að státa af því að vera þeir einu í heiminum, sem klíruðu og bók- færðu tékka í einni og sörnu vinnslu. 1. október tengdist fyrsta útibúið úti á landi, Landsbankinn á Húsa- vík, við RB með símasending- um. 1978 27. júní lögðu 6 bankar af 8 fram yfirlýsingu á stjórnarfundi um stefnumörkun RB. I þeirri stefnu- mörkun var m.a. kveðið á um, að bankarnir skyldu flytja alla sína tölvuvinnslu til RB til þess að réttlæta vélarstækkun í 1 MB minni. 1981 4. ágúst hófust skjalalaus greiðsluskipti 1. stig, eftir að tékkalögunr hafði verið breytt að frumkvæði RB. 6. nóvember hófst samvinna við PACTEL um undirbúning beinlínuvinnslu. 1982 I nrars, beinlínutenging Iðnaðar- bankans. 25. júní samþykkti stjórnin Álykt- un um beinlínumál. 4. október - Útboð á tækjakosti og tilheyrandi þjónustu við bein- línuvinnslu. 1983 15. júní samþykkti stjórn RB að taka upp samninga við Kienzle og Einar J. Skúlason um beinlínu- afgreiðslutæki. Á aðalfundi 25. nóvember var samþykkt full aðild Santbands ísl. sparisjóða að RB. ^atdkeratorsIur^^B|rh^PurnúH^eihinH5Úsunduin)jj 1987 1988 1989 1990 1991 1992 23 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.