Tölvumál


Tölvumál - 01.09.1993, Blaðsíða 22

Tölvumál - 01.09.1993, Blaðsíða 22
September 1993 Reiknistofa bankanna 20 ára Þórður Sigurðsson Um þessar mundir heldur Reikni- stofa bankanna hátíðlegt 20 ára afmæli sitt. Það var 23. mars 1973, að nokkrir mektar banka- menn komu saman til stofnfundar samstarfs um rekstur reiknistofu, tölvumiðstöðvar, sem annaðist skjalaskipti og bókhald banka og sparisjóða. Þessi stofnfundur átti sér að sjálfsögðu nokkurn að- draganda. Sívaxandi notkun tékka í íslensku viðskiptasamfélagi var fyrir- brigði, sem kallaði á störf síauk- ins fjölda bankamanna við skjala- skipti (clearingu) og bókun. Það þýddi að sjálfsögðu síauk- inn kostnað, en aukinni tékka- notkun fylgdi annar vankantur. Snjallir menn sáu í hægfara skjala- skiptakerfi opna leið til "sjálfs- afgreiðslu lána" eða þess sem almennt var kallað tékkakeðjur. Við þessar tékkakeðjur hafði verið glímt með ærnum tilkostn- aði, m.a. með skyndiskjalaskipt- um, en ekkert dugði. Það var því ákveðið á fundi bankastjóra viðskiptabankanna 25. nóvember 1970 að skipa nefnd til að athuga möguleika á sameiginlegri þjónustu fyrir við- skiptabankana, einkum sameigin- legri notkun rafreikna. Seðlabankinn lagði fram fulltrúa í þessa rafreikninefnd auk við- skiptabankanna. Greinargerð lá fy r i r eftir 10 mánaða nefndarstarf. Það álit, sem nefndin setti fram, varð þess valdandi, að í ársbyrjun 1972 tók undirbúningsnefnd til starfa, og þeirri nefnd til aðstoðar 3ja manna starfshópur. Um það bil ári síðar var stofn- fundurinn haldinn, eins og áður sagði, og kosin stjórn, sem var skipuð þessum bankastjórum: Helgi Bergs, Landsbanka, for- maður, Svanbjörn Frímannsson, Seðlabanka, Jónas G. Rafnar, Utvegsbanka, Stefán Hilmarsson, Búnaðarbanka, og Höskuldur Olafsson, Verzlunarbanka. Þessir sömu menn sátu í undirbúnings- nefndinni, nema hvað Jóhannes Nordal var þar fulltrúi Seðla- bankans. Vinnuhópurinn, sem safnað hafði upplýsingum um færslu- magn í bönkum og sparisjóðum og á þeim upplýsingum byggt leit tilboða um vélbúnað, lagði frarn skýrslu um tilboðin í lok sept- ember 1973, en aðeins 3 fyrirtæki skiluðu tilboðum, NCR, IBM og Burroughs. 1 þeim sama mánuði tók Einar heitinn Pálsson til starfa, en stjórnin hafði ráðið hann sem forstjóra hins nýja fyrirtækis. Einar var ljúfur maður og sam- vinnulipur. Hann gat þó verið ákveðinn og fastur fyrir, þegar hann taldi sig hafa rétt mál að verja. Uppbyggingarstarf hans á erfiðum byrjunarárum var ómetanlegt, en því miður naut Færslufjöldi í RB og starfsmannafjöldi banka, sparisjóöa og RB Færslumagn (millj.) -------♦--------Starfsmannaljðldi banka, ----------■--------Færsluljöldi á mann á árl. sparisjóða og RB. 22 - Tölvumái

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.