Tölvumál


Tölvumál - 01.09.1993, Blaðsíða 12

Tölvumál - 01.09.1993, Blaðsíða 12
September 1993 Frá formanni Ávarp flutt í afmælishófi Skýrslutæknifélagsins, 6. apríl 1993 Halldór Kristjánsson Ágætu gestir! Eg vil byrja á því að óska okkur til hamingju með þennan dag, ekki síst stofnfélögum okkar sem nú líta aftur til ársins 1968. Frændi minn, bóndi og Þingey ing- ur orti svo um tölvuvæðinguna: Engum háir heimskan lengur. Hér er mikil breyting á því tölvan vinnur, tölvan gengur og tölvan hugsar fyrir þá. Það er sannast sagna að tölvu- tæknin hefur tekið stórkostlegum breytingum síðan félagið okkar, Skýrslutæknifélag Islands var stofnað árið 1968, þó ekki sé nú enn svo illa komið að tölvan hugsi fyrir okkur. Þá voru sjálfvirkar skýrsluvélar, eins og þær nefndust, fáar og dýrar og þekking á notkun þeirra bundin við fáa. Nú er öldin önnur þegar fjöldi tölva hér á landi nálgast óðfluga eitt hundrað þúsund og tölvuþekking er útbreidd meðal almennings. Það er því óhætt að kalla þá frumkvöðla sem stóðu að stofn- un félagsins laugardaginn 6. apríl 1968 eftir nokkurn undirbúning sem hófst með undirbúningsfundi 19. febrúar 1968. Það dylst engum að tölvu- og upplýsingatæknin hefur búið að þessu framtaki þessara félaga okkar og að félaginu hefur auðn- ast á þessum tuttugu og fimm árum að korna mörgum góðum málum í höfn. En hvað segja annálar um stofn- árið að öðru leiti? I febrúar geisaði ofsaveður og tveir breskir togarar fórust ásamt einum báti frá Bolungarvík og gengi krónunnar lækkaði um 35,2%. Kristján Eldjárn var kosinn forseti lýðveldisins árið 1968 og Gylfi Þ. Gíslason formaður Alþýðu- flokksins. Bókin Kristnihald undir Jökli eftir Halldór Kiljan Laxness var gefin út og Jónas frá Hriflu lést. Ása Guðmundsdóttir Wright stofnaði tvo sjóði til styrktar vísindum á Islandi og hægri umferð tók gildi. Norræna húsið var vígt þetta ár og boðað var til fundar allra stjórnmála- flokkanna vegna alvarlegs efna- hagsástands sem stafaði fyrst og fremst af óhagstæðri verðlags- þróun á erlendum fiskmörkuðum og minnkandi sjávarafla. Af þessu má ráða að margt merkilegt gerðist á því herrans ári en sérstaka athygli vekur að efnahagsmálin virðast enn vera í sömu kreppunni og þá, þó okkur tölvufólki hafi skilað vel á veg til aukins þroska á þessum tíma. í ágætri grein í Morgunblaðinu í dag [6.4. 1993] rekur dr. Oddur Benediktsson sögu félagsins í tuttugu og fimm ár og vil ég nota þetta tækifæri til þess að þakka honum fyrir það. Þessi saga er okkur flestum hér inni kunn með einum eða öðrum hætti og ætla ég þvf ekki að endurtaka hana en þess í stað að fjalla lítillega um stöðu félagsins nú og horfa fram á við. Mig langar til þess að geta þess í framhjáhlaupi að nokkur umræða var á stofndögum urn það hverjir væru tækir í félagið eins og það er nefnt í fundargerðarbók. Rætt var um að hafa inngöngu bundna við samþykki félagsstjórnar og að félagsmenn frá framleiðend- um skýrsluvéla ættu ekki að hafa kjörgengi í stjórn félagsins. Mun þetta hafa verið vegna þess að eitt af markmiðum félagsins var að stuðla að hagkvæmum inn- kaupum á búnaði. Þá var ákveðið að fullt félagsgjald fyrsta árið yrði kr. 1.000,-. Á liðnum árum hefur þeim félög- um og samtökum fjölgað sem hafa einhver svið tölvu- og upp- lýsingatækni á dagskrá sinni. Mörg þeirra eru hagsmunafélög en önnur er áhugamannafélög um ákveðin afmörkuð svið. Skýrslutæknifélagið hefur ávallt starfað á breiðum grundvelli og hefur látið málefni greinarinnar í 12 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.