Tölvumál


Tölvumál - 01.09.1993, Blaðsíða 15

Tölvumál - 01.09.1993, Blaðsíða 15
September 1993 Látinn heiðursmaður, sem var reyndar einna fyrstur Islendinga til að hafa gagnavinnslu í vélum fyrir aðalstarf, varð til dæmis að láta sér lynda að vera nefndur AKI PETURSSON í opinberum skrám. Við þetta var háð erfið barátta, bæði tæknina sjálfa og framleið- endur vélanna, sem löngunr voru tregir til að leggja hart að sér fyrir hinn örsmáa íslenska mark- að. Eftir að vélagerðum tók að f jölga (frá 1949 og fram yfir 1960 voru varla til hér gagnavinnslu- vélar frá öðrum fyrirtækjum en IBM) upphófst nokkurt stríð við að samræma stafróf hinna ýmsu framleiðenda. Þessari baráttu er ekki lokið, en teikn eru á lofti (enn einu sinni!) um að hún kunni að verða léttari eftirleiðis. Mark- verður áfangi var það þegar tókst að sameina alla innflytjendur einmenningstölva af PC-gerð um eina íslenska stafatöflu áður en slíkt varð um seinan. Því miður mistókst tilraun til að ná tölvum frá Apple inn í þetta samkomulag á sama tíma. Enda þótt framleiðendur véla hafi oft verið miður leiðitamir höfum við átt Hauka í Horni erlendis, sem haft hafa aðstöðu, þekkingu og skilning til að gæta hagsmuna okkar svo um munar. Ekki er á neinn hallað þótt sérstaklega sé getið Þjóðverjans Willi Bohn, sem beitt hefur aðstöðu sinni í vinnuhópum ISO, alþjóðasam- taka um stöðlun, til að tryggja okkar kæru séreinkennum ð, ý og þ sæti í alþjóðlega stafatöflu- staðlinum ISO 8859-1. Willi hefur heimsótt Island og flutt erindi á fundum hjá félaginu. í allri þessari vinnu hefur Skýrslu- tæknifélag Islands haft nokkra forystu. Nefndir hafa starfað á vegum þess, bæði urn stafatöflur þar sem, eins og Oddur Benedikts- son segir í nefndri afmælisgrein "sá árangur náðist í samræmingu að stafaruglið er þrátt fyrir allt minna hér á landi en víða annars staðar", og eins um hnappaborð, en um það tókst einnig (áður en yfir lauk) almenn samstaða. Á meðan dvalið er við stöðlun skal einnig nefnt að félagið gaf út staðlaða viðhalds- og kaup- samninga um vélbúnað. V oru þeir allmikið notaðir á sínum tíma. Vinnan við stafatöflurnar er auð- vitað hvorttveggja stöðlun og trygging þess að unnt sé að vinna á íslensku í upplýsingatækninni. Sama má segja um það starf sem snemma hófst að íslenska orð og hugtök úr tölvumáli og koma þeim á framfæri. Eg man ekki hverjir sátu í fyrstu orða- nefndinni, en við Bjarni heitinn Jónasson, þáverandi forstjóri Skýrsluvéla ríkisins og Reykja- víkurborgar, gáfum út fyrsta vísinn að orðasafni þannig frá genginn að erlendu orðin ásamt þýðingum voru færð inn á gata- spjöld. Þegar pantanir bárust var spjaldabunkanum rennt í gegn um "tabúlator" og prentað á sam- hangandi pappír jafn oft og upp- lagið þurfti að vera. [Síðan þetta ávarp var haldið hef ég rifjað upp með hjálp Tölvu- mála (9. tbl. 2. árg. desember 1977) að Bjarni Jónasson varfor- maður nefndarinnar til þess tíma frá stofnun 1968. Hafði nefndin þá gefið út tvær útgáfur af orðalistanum með ofangreindum hætti. Bjarni gekk úr nefndinni um þessar mundir, en eftir voru Jóhann Gunnarsson, formaður, Baldur Jónsson og Jón Skúlason. Formennska undirritaðs var stutt, stóð aðeins fram á næsta vor, en þá hélt ég af landi brott til þriggja ára búsetu. Frá 1978 sitja þau í orðanefnd Baldur Jónsson, Sigrún Helgadóttir, Þorsteinn Sæmundsson og Örn Kaldalóns.J Að orðasmíðinni var svo gengið síðar af betri efnum og meiri nryndarskap. Tölvuorðasafn hefur komið út í tveimur útgáfum síðan. Orðasafnið er staðall í þeim skilningi að í báðum út- gáfum hefur að verulegu leyti verið stuðst við alþjóðlegan staðal, Data processing - vocabulary (ISO 2382). En tæknin þróast ört og enn er þörf fyrir nýtt átak í orðtöku og útgáfu, sem ég vona að félaginu auðnist að hrinda í framkvæmd. Ekki er fullgreint frá afskiptum félagsins af stöðlun nema nefnt sé að félagið var á sínum tíma beðið að skipa fulltrúa í Staðla- ráð í upplýsingatækni (UT - staðlaráð), sem það gerði. Félagið átti einnig þátt í stofnun Fagráðs í upplýsingatækni á sl. sumri og hefur átt mann í stjórn. Félagið hefur gefið út siðareglur og haft afskipti af löggjöf, til dæmis urn meðferð persónu- upplýsinga. Upptalning þarf ekki að vera lengri til að sýna að á þessum sviðum hefur félagið markað spor, haldið vöku sinni og verið í forystu þar sem forystu var þörf. Megi það halda svo áfram lengi enn. Lifið heil. Jóhann Gunnarsson er deildarstjóri tölvumála í fjármálaráðuneytinu - Hagsýslu ríkisins og heiðursfélagi Skýrslu- tœknifélags Islands. 15 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.