Tölvumál


Tölvumál - 01.09.1993, Síða 8

Tölvumál - 01.09.1993, Síða 8
September 1993 þessarar nýju tækni og voru félögin með svipuðu sniði og Skýrslutæknifélagið. Starfsemi félagsins í félagasamþykkt Skýrslutækni- félagsins segir svo: "Tilgangur félagsins er að stuðla að hag- rænum vinnubrögðum við gagnavinnslu í hvers konar rekstri og við tækni- og vísindastörf. Þessum tilgangi hyggst félagið ná með því að gangast fyrir sýningum, fyrirlestrahaldi, um- ræðum, upplýsingamiðlun og námskeiðum ... samræmingu og stöðlun..." Nú verður drepið á nokkur atriði úr annálum félagsins. Fyrstu árin mótaðist starfsemin af kynningar- og fræðslustarf- semi. Þávareinniglagðurgrund- völlur að norrænu samstarfi á þessu sviði á vettvangi Nordisk DataUnion. Orðanefndfélagsins hóf störf á þessum tíma. Gögn sem varðveist hafa um starfsemi félagsins fyrstu árin eru mjög slitrótt og ber annállinn merki þess. 1968 Stjórn félagsins hlutaðist til um stöðlun á segulræmum og gat- ræmum. Hluti af samþykkt um þetta efni hljóðaði svo: "Með tilliti til þess að gera má ráð fyrir mjög aukinni notkun segulræma og pappírsræma við gagna- vinnslu í rafeindavélum, vill stjórn Skýrslutæknifélagsins ein- dregið mæla með því, að allir, sem þessi tæki nota, hafi sömu stærðir. Stjórnin mælir með því að notaðar séu ræmur með átta (8) rásum..." Ný vélarsamstæða IBM 360/30 hjá SKÝRR var kynnt ásamt nýjungum í þjóðskrárvinnslu. Erindi héldu Bjarni P. Jónasson, Einar Pálsson, Jón Zophoníasson, Max Rosen, deildarstjóri frá IBM Danmörku, og Ottar Kjartansson. 1969 Ráðstefna var haldin um "fræðslumál, að því er snertir gagnavinnslu með rafeindavél- um". Efnisflokkar voru þessir: "Menntun og þjálfun starfs- manna", "Fræðsla fyrir forstöðu- rnenn og yfirmenn", "Undirbún- ingur verkefna" og "Líkanagerð fyrir rafreikna". Oddur Benediktsson hélt erindi á félagsfundisemhét "Uppbygging og úrvinnsla skráa fyrir rafeinda- vélanotkun". 1972 Á félagsfundi flutti Ólafur T ómas- son erindið "Fjarvinnslukönnun á vegum CEPT" og Rolf Ammundsen erindið "Um að- ferðir við áætlun um fjarvinnslu- þörf á sviði tölvutækni". Haldinn var félagsfundur með pallborðs- umræðum um "Ýmis viðhorf gagnvart tölvutækni". Við pall- borðið sátu Sigurður Þórðar- son, Bjarni Grétar Ólafsson, Ottó A. Michelsen, Ásmundur Brekk- an, Hjörtur Torfason, Þórhallur Halldórsson og Gunnar Gunn- arsson. Ýmsar spurningar voru reifaðar svo sem: Hver er réttarstaða borgaranna gagnvart notkun tölvutækni? Hver er höf- undaréttur eða upprunaréttur að forritum? Hver er staða tölvu- tæknimanna í þjóðfélaginu? Hver er helsti ávinningur af hag- nýtingutölvunnar? Erlistsköpun hugsanleg með tölvu? Á félagsfundi var fjallað um hagnýtingu tölvuvinnslu. Haukur Pálmason flutti erindið "Notkun stýritölva við dreifingu raf- magns", Þorgeir Pálsson erindið "Notkun stýritölva við flugum- stjóm", Elías Davíðsson erindið "Gagnamiðstöð og gagnavinnsla á sjúkrahúsum" og Jóhann Gunnarsson erindið "Nýjungar á sviði tölvutækni". 1973 í febrúar 1973 voru alls 63 fyrir- tæki, félög og stofnanir skráð í Skýrslutæknifélaginu og aðild höfðu alls 181 einstaklingar. Poul E. Hjulmand, forstjóri hjá Bankernes EDB Central í Dan- mörku, hélt fyrirlestur er hann nefndi "Samarbejde paa data- processing omraadet". Haldin var ráðstefna í samvinnu við Stjórnunarfélag íslands um "Gildi stórrar tölvumiðstöðvar fyrir þróun tölvutækni hér á landi''. Kristen Nygaard, forstöðumaður Norsk Regnecentral, og Oddur Benediktsson voru frummæl- endur. Bent Rosenkranz, frá IBM í Danmörku, hélt fyrirlesturinn "Nýjungar á APL-SVIÐINU". Helgi Sigvaldason hélt fyrirlestur um hæfnismat tölvusamstæða. 1974 Orðanefnd Skýrslutæknifélags- ins gaf út "Skrá yfir orð og hugtök varðandi gagnavinnslu", 2. út- gáfa. Þá var nefndin skipuð þeim Bjarna P. Jónassyni, Jóhanni Gunnarssyni, Jóni Skúlasyni og Þóri Sigurðssyni. 1975 Einar Pálsson, forstjóri Reikni- stofu bankanna, var kosinn for- maður félagsins. Elías Davíðsson vakti máls á nauðsyn þess að sett verði lög um meðferð persónuupplýsinga í tölvum. 8 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.