Tölvumál - 01.09.1993, Side 11
September 1993
Félagið er aukaaðili að IFIP
(International Federation for
Information Processing).
Haldnar voru eftirtaldar ráð-
stefnur á árinu:
"Framtíðarsýn stjórnenda",
"Tölvunotkun í námi", "Opin
kerfi", "Stöðluð notendaskil"
og "Einmenningstölvur-gluggað
í framtíð", "Námstefna um siða-
mál og viðskiptahætti" og "Hug-
búnaðargerð - nýir straumar".
1992
Félagið tók þátt í stofnun
"Fagráðs í upplýsingatækni" á
vegum Staðlaráðs íslands og var
Halldór Kristjánsson kosinn í
stjórn fagráðsins. Jóhann Gunn-
arsson var fyrsti formaður ráðs-
ins.
"Tölvumál" rit félagsins birtist í
nýjum og vönduðum búningi.
Ritstjórnina skipuðu þau Agúst
Úlfar Sigurðsson, ritstjóri og
ábm., Daði Jónsson, ritstjóri,
Björn Þór Jónsson og Sigrún
Harpa Hafsteinsdóttir.
Félagið samþykkti siðareglur
fyrirfélagsmennsína. Isiðanefnd
eiga sæti Gunnar Linnet, Oddur
Benediktsson (formaður) og
Sigurjón Pétursson.
Haldnar voru ráðstefnurnar:
"Upplýsingatækni - Island -
Evrópa", "Ríkið og tölvumálin -
hvert stefnir", "Vinnubrögð í
hugbúnaðargerð" og "Tölvu-
samskipti ’92".
Haldinn var ET dagur. Fjallað
um einmenningstölvur.
1993
Námsstefnan "Nettengdur sýndar-
veruleiki" var haldin í samvinnu
við Félag tölvunarfræðinga og
Háskóla íslands. Carl E. Loeffler
frá Carnegie Mellon University
var fyrirlesari. Með orðum hans
sannaðist það er Jónas kvað:
Ég kominn upp á það,
allra þakka verðast,
að sitja kyrr á sama stað,
og samt að vera að ferðast.
Haldin var ráðstefnan "Fjarskipti
- grunnur framtíðarinnar" þar sem
K.H. Rosenbrock, yfirmaður
ETSI staðlastofnunarinnar, og
Guðmundur Olafsson höfðu
framsögu.
Haldin var fjölsótt ráðstefna sem
nefndist "Tölvuvæðingíkieppu".
Fyrirlestra fluttu Guðjón
Guðmundsson, Jóhannes Jóns-
son, Jakob Sigurðsson, Þorkell
Sigurlaugsson, Kjartan Olafsson
og Gylfi Aðalsteinsson.
Oddur Benediktsson er
prófessor í tölvunarfrœði
við Háskóla Islands og
heiöursfélagi SI.
Afmælisráðstefna
Hvað ber framtíðin í skauti sér?
Ráðstefnan verður haldin á Hótel Sögu A-sal
föstudaginn 10. september kl. 13 -17.
Litið er til framtíðar í íslensku þjóðfélagi og fjallað um hlut upplýsingatækni í
sjávarútvegi, stjórnun fyrirtækja, hugbúnaðargerð og þátt menntunar í því að vel
takist til við að byggja upp slíkan atvinnuveg og um þróun íslensk þjóðfélags,
byggðastefnu og atvinnuvegi.
11 - Tölvumál